GUÐLAUGUR KRISTMANNSSON hvarf þann 12. febrúar, 1980
Bjarki Hólmgeir Halldórsson tók efnið saman
Guðlaugur Kristmannsson var fæddur 30. janúar árið 1924. Hann giftist Önnu Kristjönu Bjarnadóttur árið 1954 og eignuðust þau soninn Bjarna. Anna átti fyrir dótturina Margréti Hansen. Faðir Margrétar var Hans Jörgen Hansen. Anna lést 1995. Guðlaugur var einn eiganda og verslunarstjóri JBP sem staðsett var á horni Ægisgötu og Mýrargötu.
Þriðjudagsmorguninn 12. febrúar árið 1980 hélt hann frá heimili sínu, Granaskjóli 4 í Reykjavík klukkan 7:20, til vinnu sinnar, fótgangandi sem svo oft áður þegar veður var gott. Þegar hann mætti ekki til vinnu sinnar á tilsettum tíma fóru samstarfsmenn hans að undrast um hann, enda var Guðlaugur með eindæmum stundvís maður af þeirra sögn og annara sem hann þekktu.
Frá heimili Guðlaugs og að verslun JBP var ekki nema um stundarfjórðungs gangur. Veður var gott þessa daga og jörð var auð.
Fljótlega þennan dag var sett af stað eftirgrenslan og síðan leit að Guðlaugi. Leitað var á landi, úr lofti og á sjó. Fjörur gengnar og kafarar leituðu í Reykjavíkurhöfn en án árangurs. Ekki fannst tangur né tetur af Guðlaugi.
Lýst var eftir honum í blöðum og þar kemur fram að hann hafi verið um 180 sentimetrar á hæð, skolhærður, þunnhærður og með yfirvaraskegg. Klæddur í brúna beltisúlpu með skinnkraga, gráköflóttum jakka, grárri skyrtu, brúnum buxum, brúnum skó með derhúfu. Heilsuhraustur og hress með lífið og tilveruna. Fram kemur einnig að hann hafi átt það til að fá sér göngutúr um hafnarsvæðið í Reykjavík áður en hann mætti til vinnu.
Þrátt fyrir umfangsmikla leit og eftirgrenslan fannst aldrei neitt sem skýrt gat hvarf Guðlaugs. Það var bókstaflega eins og hann hefði gufað upp. Fjölskylda hans varð fyrir talsverður símaónæði eftir hvarfð. Var þar að mestu um að ræða dukkið fólk sem hringdi úr samkvæmum að nóttu til og spurðu hvort Guðlaugur væri fundinn.
Enn þann dag i dag hefur ekkert komið fram sem varpað gæti ljósi á hvarfið. Guðlaugur var úrskurðaður látinn árið 1983 og var haldin minningarathöfn um hann sem átti að vera í kyrrþei en kirkjan fylltist þó, enda var Guðlaugur vinsæll og vinamargur maður.
Lögreglan tekur að sjálfsögðu við ábendingum um málið sem er enn til rannsóknar eins og önnur mannshvörf. Búir þú yfir upplýsingum varðandi ofangreint, eða önnur mannshvörf er þér einnig bent á að hafa samband með tölvupósti. Póstfangið er mannshvarf@gmail.com

Hvarf Friðriks Kristjánssonar rannsakað sem sakamál
https://gamli.frettatiminn.is/hvarf-fridriks-kristjanssonar-rannsakad-sem-sakamal/
Umræða