Maður þarf ekki að fara langt aftur í tímann, til þess tíma þegar það var talið syndsamlegt að stunda kynlíf fyrir hjónaband, en í dag er það líka normið.
Á sama tíma eru líka fleiri sem eru opnir fyrir annars konar sambúðarformi en hefðbundna sambúðar og hjónabandsforminu eins og tíðkast hefur í seinni tíð.
Sjónvarpsstjarnan Thomas Middleditch (37), þekktur sem leikari í Silicon Valley, er meðal þeirra sem kjósa slíkan lífsstíl, þ.e. ekki hefðbundið sambúðarform. Nú er stjarnan búin að fullyrða að líf hans með fleiri konum en eiginkonunni hafi í raun bjargað hjónabandi sínu.
Þurfti að vera heiðarlegur
Um áratuga skeið hefur Middleditch komið við sögu í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta. Stærsta og eftirminnilegasta hlutverk hans er þó líklega sem Richard Hendricks í ofangreindri HBO seríu, sem hann var tilnefndur til Emmy verðlauna fyrir. Hann er 37 ára og á engin börn en er giftur búningahönnuðinum Mollie Gates. Þau trúlofuðust sumarið 2015 og giftu sig fljótlega.
Hvað gerist á bak við lokaðar dyr, hefur verið okkar einkamál, en við höfum ákveðið að opna okkur með það núna. Í nýju viðtali við Playboy talar hann opinskátt um hvernig hann og kona hans taka reglulega virkan þátt í hópkynlífi. ,,Ég veit ekki hversu mikið ég get sagt vegna þess að ég vil ekki að konan mín verði reið. En eftir að við giftumst þurfti ég að vera heiðarlegur og segja Mollie að við yrðum að vera óhefðbundin að þessu leiti,“ segir hann og heldur áfram:
Hún hefði getað sagt við mig „fuck you, ég er farin“, frekar en það sem hún sagði „við getum fundið lausn“. Til að vera fullkomlega heiðarlegur, þá bjargaði það hjónabandi okkar. Þeim líkar þó ekki við að lýsa sjálfum sér sem ,,swingers“ og vilja frekar segja að þau „taki þátt í ákveðnum lífsstíl“. Þótt þeim líði mjög vel með það hvernig þeir lifa núna hefur það ekki alltaf verið svo.
Leikarinn útskýrir að hann teldi að hann ætti að vera eins og „allir aðrir.“ Að hann ætti að vera rómantískur, verða ástfanginn og giftast. Lífið hefur aftur á móti kennt honum að ástin deyr út þegar til langs tíma er litið og að hann mun ekki bæla kynferðislegar óskir sínar.
Hægt er að skilgreina hóp kynlíf sem eins konar stjórnað framhjáhald þar sem þú skiptir á félaga eða stundar hóp kynlíf með öðrum pörum. Samkvæmt tölfræði frá RFSU árið 2010 dreymir t.d. 34 prósent norðmanna um að stunda hóp kynlíf. Aftur á móti gerðu það aðeins 12 prósent í raun.
Það er alls ekki eins og að ekki hafi verið settar reglur, eins og sumir telja
Þú verður að vita hvar mörkin liggja, Mollie og ég höfum búið til okkar eigin reglur og samanborið við hina sem við höfum kynnst sem eru að gera þetta, eru reglur okkar frekar strangar. Við gerum hlutina ekki sjálf; við erum saman, sem eining, útskýrir hann.
Aðspurður hvort hann sé hræddur við hvað þessi játning muni gera út af við orðsporið? Svarar hann að hann „sé sé fjandans sama“ og finnist heiður að geta tjáð sig heiðarlega um málið og bendir á að rannsókn hafi verið gerð árið 2013, af sálfræðiprófessornum Bente Træen og sálfræðingnum Anne-Sofie Bentzen, sem sýndi að fólk sem stundar hóp kynlíf sýndi að lífsstíllinn hefði jákvæð áhrif fyrir sambandið og parið sem óskuðu að stunda slíkt, persónulega.
Viðtal sem einnig var tekið í Playboy: https://www.playboy.com/read/thomas-middleditch-20q
https://gamli.frettatiminn.is/2019/09/14/siv-stundar-kynlif-med-thremur-i-einu-og-gefur-theim-einkunnir-myndband/