Brot 10 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í austurátt, við Garðatorg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 230 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 89.
Brot 134 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá mánudeginum 16. október til fimmtudagsins 19. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á rúmlega þremur sólarhringum fóru 21.287 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 20 ökumanna voru mynduð í Lækjargötu í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lækjargötu í suðurátt, að Vonarstræti. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 103 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.
Vöktun lögreglunnar er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.