• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 19. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

110 börn og ungmenni láta ljós sitt skína á Ungmennaþingi Hafnarfjarðar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. nóvember 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Rúmlega 110 fulltrúar barna og ungmenna í 8.-10. bekkjum grunnskóla Hafnarfjarðar komu saman á Ungmennaþingi Hafnarfjarðar sem haldið var í Sjónarhóli í nýliðinni viku. Ungmennaþingið var hugsað og skipulagt sem opinn og hvetjandi vettvangur og einstakt tækifæri fyrir hafnfirsk börn og ungmenni til að koma skoðunum sínum og sjónarmiðum er varða heimabæinn Hafnarfjörð og þjónustu sveitarfélagsins á framfæri. Ungmennaþingið er liður í þeirri vegferð sveitarfélagsins að hljóta viðurkenningu UNICEF á Íslandi sem barnvænt sveitarfélag.

 

Yngri íbúar fá sterkari rödd og tækifæri til umræðu og skoðanaskipta

Á þinginu var kallað eftir umræðu og skoðunum á ýmsum málum er varða hag barna og ungmenna í sveitarfélaginu. Hópurinn var m.a. spurður að því hvort öll fái jöfn tækifæri í skólanum, íþróttum og tómstundum, hvað þau langi til að læra í skólanum og hvort þau fái rými til að koma skoðunum sínum á framfæri. Þá voru börnin spurð hvað þeim finnst um umhverfið í Hafnarfirði, félagsmál, menningu, geðheilbrigði, forvarnir og samgöngumál. Fulltrúar unnu vel og nú tekur við vinna við að greina niðurstöður þingsins sem kynntar verða betur síðar. Hafnarfjarðarbær vinnur að því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna inn í alla stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélagsins, undir formerkjum verkefnisins Barnvæn sveitarfélög og er ungmennaþing liður í innleiðingunni. Ákvörðun sveitarfélagsins um að innleiða barnasáttmálann felur í sér viðurkenningu á að þekking og reynsla barna og ungmenna sé verðmæt fyrir sveitarfélagið. Barnvæn sveitarfélög stuðla að virkri þátttöku barna í málefnum sem snerta þau og eiga sveitarfélögin markvisst samráð við börn og ungmenni til að bæta, aðlaga og auka þjónustu sína.

 

20. nóvember er dagur mannréttinda barna

20. nóvember er dagur mannréttinda barna og afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. 33 ár eru síðan Barnasáttmálinn var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Barnasáttmálinn hefur leitt til víðtækra breytinga á viðhorfum til barna og áhrifa hans gætir víða. Þar ber helst að nefna meginreglu sáttmálans um rétt barna til þátttöku og áhrifa og þá kröfu sáttmálans að grundvalla eigi ákvarðanir og ráðstafanir sem varða börn á því sem þeim er fyrir bestu, að til þeirra sé leitað og tekið tillit til sjónarmiða þeirra. Hafnarfjarðarbær vekur athygli á degi mannréttinda barna með hugmyndasöfnun og ungmennaþing í aðdraganda dagsins. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Barnasáttmálinn eru grundvöllur þvert á starfsemi Hafnarfjarðarbæjar og leiðarljós í framtíðarsýn og heildarstefnu Hafnarfjarðar til ársins 2035.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ríkisstjórnin skoðar að slaufa krónunni og taka upp aðra mynt

    Ríkisstjórnin skoðar að slaufa krónunni og taka upp aðra mynt

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Krónan hrynur og er áhættugjaldmiðill – „Tími krónunnar er liðinn“

    156 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    107 deilingar
    Share 43 Tweet 27
  • Katrín sér ekki eftir neinu, nema tapinu í forsetakosningunum

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Atvinnuleitendur fá desemberuppbót

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?