Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur undanfarinn sólarhring sinnt þremur útköllum. Meðfylgjandi myndband sýnir þyrlu Landhelgisgæslunnar taka á loft frá Reykjavíkurflugvelli og við leit nærri Strandakirkju en í gærdag leitaði áhöfnin á TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar, að Almari Yngva Garðarssyni, sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir.
Áhöfnin á eftirlitsflugvélinni TF-SIF tók einnig þátt í leitinni. S.l. nótt sótti þyrlusveitin slasaðan sjómann á grænlenskan togara djúpt vestur af landinu og þá var ökumaður fólksbíls fluttur á Landspítalann eftir umferðarslys á Snæfellsnesi.
Umræða