Gat á sjókví með 157.000 löxum í Arnarfirði – ,,Gatið um 15cm x 50cm og á 20m dýpi og voru um 157.000 laxar í kvínni með meðalþyngd 1,3 kg.“ (200 tonn).
Matvælastofnun barst í dag tilkynning frá Arnarlaxi um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Hringsdal í Arnarfirði.
Gatið uppgötvaðist við skoðun kafara í morgun og er viðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið um 15cm x 50cm og á 20m dýpi og voru um 157.000 laxar í kvínni með meðalþyngd 1,3 kg. Sem gerir rúm 200 tonn af laxi.
Atvikið er til meðferðar hjá Matvælastofnun og munu eftirlitsmenn stofnunarinnar skoða aðstæður hjá fyrirtækinu og fara yfir viðbrögð þess.
Arnarlax hefur lagt út net í samráði við Fiskistofu til að kanna hvort slysaslepping hafi átt sér stað.
Umræða