• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 15. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Varnaræfingin fer fram á Íslandi

Öðrum aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins og samstarfsríkjum er boðin þátttaka - sjóherir Bretlands, Frakklands, Þýskalands og Noregs staðfest þátttöku

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. mars 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 fer fram á Íslandi og á hafinu í kringum landið dagana 2.-14. apríl næstkomandi. Megintilgangur æfingarinnar er að æfa varnir sjóleiða umhverfis Ísland og mikilvægra öryggisinnviða en einnig leit og björgun á sjó og landi. Um er að ræða reglubundna tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna með þátttöku fleiri vina- og bandalagsríkja.

Varnaræfingin Norður-Víkingur hefur verið haldin reglulega frá 1982 en hún grundvallast á ákvæðum varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá 1951. Til stóð að halda hana vorið 2020 en vegna heimsfaraldursins var þeim áformum slegið á frest.

Tilgangur æfingarinnar er meðal annars að æfa varnir sjóleiðanna í kringum landið og varnir mikilvægra mannvirkja og öryggisinnviða, til dæmis fjarskiptakapla. Þá æfa þátttakendur leit og björgun almennra borgara og taka Landhelgisgæslan og lögreglan þátt í þeim hluta. Liður í Norður-Víkingi er svo lending bandarískra landgönguliða  við Miðsand í Hvalfirði. Lendingin er áætluð kringum 11. apríl og má þá búast við tímabundnum takmörkunum á umferð um svæðið. Fjölmiðlar fá tækifæri til að fylgjast með æfingunni og viðburðum henni tengdri eins og frekast er kostur.

Öðrum aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins og samstarfsríkjum er boðin þátttaka í æfingunni og hafa sjóherir Bretlands, Frakklands, Þýskalands og Noregs staðfest þátttöku. Herskip frá þessum ríkjum æfa varnir siglingaleiðanna suður af Íslandi og taka þátt í kafbátaleit undan ströndum Íslands með þátttöku kafbátaleitarvéla og þyrlna frá viðkomandi þátttökuþjóðum.

Umfang æfingarinnar er svipað og áður. Alls er reiknað með að heildarfjöldi þátttakenda í æfingunni á Íslandi verði rúmlega 700 manns, um helmingur þeirra verður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að þegar æfingunni er lokið komi tvö til fjögur herskip til hafnar í Reykjavík og áhafnir þeirra fari í stutta stund í land.

Umræða
Share62Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    170 deilingar
    Share 68 Tweet 43
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Líkfundur

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?