Þjálfun úkraínskra hermanna á sviði sprengjuleitar og sprengjueyðingar hófst í Litáen í vikunni. Um er að ræða samstarfsverkefni Norðurlandanna og Litáen og annast litáískir, norskir, sænskir og íslenskir sprengjusérfræðingar framkvæmdina. Utanríkisráðuneytið greindi frá.
Markmið verkefnisins er að gera úkraínska hernum betur kleift að finna og eyða ósprungnum sprengjum í Úkraínu í kjölfar innrásar Rússlands en talið er að ósprungnar sprengjur af ýmsu tagi fyrirfinnist á allt að fimmtungi úkraínsks landssvæðis Þjálfunin eru liður í því að styrkja varnarsveitir Úkraínu og draga úr hættu á því að íbúar landisins verði fyrir skaða.
„Eftir að hafa séð með eigin augum eyðilegginguna og hörmungarnar sem sprengjuárásir Rússa hafa valdið almenningi í Úkraínu er ég stolt að því að við getum lagt okkar af mörkum á sviði sem Ísland hefur sérþekkingu á í samstarfi við okkar nánustu samstarfsríki,“ segir Þórdís Kolbrún Gylfadóttir utanríkisráðherra en hún kynnti verkefnatillögu um þetta málefni á ráðstefnu um stuðning við öryggi og varnir Úkraínu í Kaupmannahöfn í fyrrasumar.
Utanríkisráðuneytið í samstarfi við sérfræðinga séraðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar hafa annast undirbúning og framkvæmd verkefnisins en þeir hafa á undanförnum árum sinnt verkefnum á vegum Atlantshafsbandalagsins á sviði þjálfunar sprengjusérfræðinga, meðal annars í Írak og Jórdaníu.
Hver kennslulota stendur yfir í fimm vikur og stefnt að því að ljúka í það minnsta fjórum lotum á þessu ári.