Strokufanginn Sindri Þór Sigfússon var handtekinn í miðborg Amsterdam í Hollandi í dag
Sindri strauk úr fangelsinu á Sogni aðfararnótt þriðjudags og komst með flugi til Svíþjóðar morguninn eftir. Hann var um það bil að lenda í Svíþjóð þegar að það uppgvötvaðist að hann var horfinn úr herbergi sínu á Sogini, þar sem að hann hafi komist út um glugga óséður og fékk far með leigubíl á Keflavíkurflugvöll.
Talið var að Sindri hefði farið til Spánar, vegna þess að hann á hús þar og var alþjóðleg handtökuskipun gefin út á hendur honum og vegabréf hans var gert ógilt skv. frásögn Ólafs Helga Kjartanssonar lögreglustjóra.
Eldra:
Uppfært: Sindri Þór Stefánsson, sem strauk af Sogni í nótt, fór úr landi á fölsuðum skilríkjum í morgun.
RÚV greinir frá þessu og vitnar í Ólaf Helga Kjartansson, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Sindri er sagður hafa komist af landi brott um svipað leyti og lögreglan fékk tilkynningu um flótta hans úr fangelsinu um klukkan átta í morgun.
Ólafur Helgi vill ekki veita upplýsingar um hvert Sindri fór en heimildir RÚV herma að hann hafi farið til Evrópu.
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Sindra Þór Stefánssyni en hann strauk frá fangelsinu að Sogni nótt kl.01.00
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að Sindri hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 2. febrúar s.l. vegna rannsóknar lögreglunnar á umfangsmiklum þjófnaði á tölvubúnaði.
„Sindri er í þróttamannslega vaxinn með skolleitt hár, skegghýung og er 192 cm á hæð. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum strauk Sindri frá Sogni kl. 01:00. Allir þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Sindra frá því kl. 01:00 í nótt eru beðnir um að koma þeim upplýsingum á framfæri við Lögregluna.“