Það var líf og fjör í Hafnarfjarðarhöfn síðastliðnu daga og menn að gera báta sína klára til handfæraveiða. Nokkrir voru að sjósetja um helgina, bæði þeir sem eru að fara á skak og svo þeir sem eru með hobbýbáta fyrir sjóstöng.
,,Menn voru að fara bara stutt út og voru að fá fínan afla á færin,“ sagði sjómaður á strandveiðibáti en hann var búinn að fylla fjögur kör eftir daginn.
Þá póstaði annar sjómaður þessari mynd af togara á handfæraslóð þar sem strandveiðbátarnir eru að reyna að athafna sig og segir að trillurnar þurfi að fara dýpra svo togararnir geti athfanað sig í fjörunni.
,,Togarar komast ekki að við strendur íslands. Strandveiðiflotinn bókstaflega fyrir. Myndin sýnir óréttlæti kerfisins.
Togarar upp í fjöru og strandveiðiflotinn fyrir utan.“ Segir trillukarlinn.
,,Færeyingar leyfa sínum frystitogurum ekki að veiða innan 200 mílna, hér fá okkar frystitogarar að veiða innan um trillurnar, á 12 mílum“
,,Er nú aðallega að sýna fólki í landinu hverjir möguleikarnir eru hjá strandveiðiflotanum á móti þessum ryksugum. Sangjarnt þykir að við búum við sama kerfi og þessar stóru verksmiðjur.
Strandveiðar eiga að vera frjálsar. Og svo ég svari er eðlilegt og öryggisvænt að hafa stærri skip grynnra og mynni dýpra (fjær).
,,Leyfum stórútgerð að halda sínu kerfi og skuldum. Opnum strandveiðar og gerum þær frjálsar og höldum þeim sem mest frá skuldum. Þannig verður þjóðin sjálfstæð með nýja auðlind sem gefur störf.“