Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur andlát konu í fjölbýlishúsi á Akureyri til rannsóknar. Grunur er um að það hafi borið að með saknæmum hætti
Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar andlát konu í fjölbýlishúsi á Akureyri.
Klukkan 04:30 aðfaranótt mánudags var lögregla kölluð að húsinu og var fyrstu lögreglumönnum sem komu á vettvang vísað á meðvitundarlausa konu í íbúðinni og hófust endurlífgunartilraunir þegar í stað.
Í tilkynningu lögreglu segir að grunur sé um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti og hefur lögreglan hafið rannsókn. Í íbúðinni var annar einstaklingur og var hann handtekinn í þágu rannsóknar málsins og nýtur réttarstöðu sakbornings. Krafa um gæsluvarðhald yfir honum verður lögð fram fyrir dómi í dag. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögregla segir að rannsókn málsins sé á frumstigi og að mikil vinna sé framundan. Ekki verði frekari upplýsingar veittar um málið að svo stöddu.