Nú fer í hönd sá tími er búfé fer á beit í sumarhögum. Víða gengur búfé, þá einkum sauðfé við þjóðvegi landsins og þarf ekki að fjölyrða um þá hættu sem skapast getur af því og þurfa ökumenn að hafa alla athygli á veginum. Fjöldi umferðaróhappa eru tilkynnt til lögreglu á hverju ári þar sem ekið hefur verið á búfénað. Í hverju tilfelli er ljóst að um talsvert eignartjón er að ræða þar sem bifreiðar fara oft mjög illa og búfénaður drepst.
Teknar hafa verið saman upplýsingar um fjölda tilkynntra tilvika á suðurlandi þar sem ekið er á sauðfé frá árunum 2014 – og með 2018. Alls hefur verið ekið á 811 kindur á þessu tímabili og í öllum þessum tilfellum hafa kindurnar drepist eða þeim verið lógað í kjölfarið. Um 75% tilvika á sér stað í Austur – Skaftafellssýslu en á tilteknu árabili var ekið á 607 kindur þar. Aðstæður í austur –Skaftafellssýslu eru talsvert frábrugðnar öðrum svæðum þar sem engin eiginlegur afréttur er á svæðinu og gengur mest allt sauðfé í eignarlöndum og stutt milli fjalls og fjöru. Þjóðvegur 1 í Austur –Skaftafellssýslu er að mestur ógirtur utan Nesja þar sem lausaganga búfjár er bönnuð en það er um 35 km kafli af um 230 km. Í töflunni hér að neðan má sjá þróunina sem er í takt við aukna umferð en tilfellum fækkar allstaðar utan
Austur – Skaftafellssýslu, en þar er aukning.
Margoft hefur verið rætt og ritað um þetta vandamál og ljóst að gríðarlegur kostnaður hlýst af þessu, bæði fyrir bændur og ökumenn og auk þess sem alvarleg slys geta orðið. Förum því varlega og höldum athygli.