6.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

Skotárás í grennd við leikskóla

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Á áttunda tímanum í morgun var tilkynnt um skothvelli við fjölbýlishús á Miðvangi í Hafnarfirði, en grunur leikur á að íbúi í húsinu hafi skotið á kyrrstæða bifreið sunnan megin við fjölbýlishúsið. Þar eru bifreiðastæði, en gegnt húsinu er leikskóli.

Aðgerðir lögreglu á vettvangi standa enn yfir, en starfsfólki og börnum á leikskólanum hefur verið gert að halda sig innandyra á meðan á þeim stendur og þá hefur verið lokað fyrir alla umferð um hluta Miðvangs. Engan sakaði í morgun, en ljóst er að mikil hætta var á ferð og var sérsveit ríkislögreglustjóra strax kölluð til vegna alvarleika málsins.

Engar frekari upplýsingar er hægt að veita að  svo stöddu.