Tvær ungar konur duttu laglega í lukkupottinn víðfræga þegar tölurnar þeirra voru dregnar út síðasta laugardag en þá var potturinn fjórfaldur, með vinning upp á rúmar 52 milljónir. Þær eiga það sameiginlegt að vera með tölurnar sínar í áskrift og voru báðar í sumarleyfi með fjölskyldum sínum þegar draumasímtalið kom, önnur á Íslandi en hin á Spáni.
Sú á Íslandi sagðist vera stödd á fallegasta stað landsins í frábæru veðri, hún var alein á göngu þegar hún fékk símtalið góða sem tilkynnti henni að vinningur upp á rúmar 26 milljónir biði hennar. Hún hafði mestar áhyggjur af því að gleðiópin heyrðust í nálægar tjaldbúðir og ætlaði að taka á rás til að segja fjölskyldunni sinni gleðitíðindin.
Ekki voru fagnaðarlætin minni hjá fjölskyldunni sem var stödd á Spáni, ekki amalegt að fá fréttir um 26 milljóna króna vinning þegar verið er að njóta lífins á sólarströnd.
Við óskum þessum ungu fjölskyldum innilega til hamingju með glæsilega vinninga og minnum að ef þú ert með tölurnar þínar í áskrift halda þær alltaf áfram að vinna fyrir þig.
Umræða