• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 15. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þrír bátar í vandræðum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. ágúst 2018
in Óflokkað
A A
0

Þrír bátar í vandræðum

 

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir landsins hafa haft í nógu að snúast í dag.
Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir frá Siglufirði, Skagaströnd og Sauðárkróki voru kallaðar út á þriðja tímanum í dag vegna báts sem strandað hafði í fjöru við Reykjadisk í Skagafirði. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá bátnum klukkan 14:00. Einn var um borð. Björgunarskipin Húnabjörg frá Skagaströnd og Sigurvin frá Siglufirði héldu þegar í stað á vettvang ásamt liðsmönnum frá björgunarsveitinni á Sauðárkróki.
Þyrlan Líf var við æfingar er útkallið barst og var haldið beint á staðinn. Þar að auki var ákveðið að varðskipið Týr sem statt var austan Grímseyjar héldi í átt að strandstað. Á fimmta tímanum tókst að ná bátnum af strandstað með aðstoð fiskibáts sem staddur var í grenndinni. TF-LIF var þá komin á staðinn en áhöfn hennar var til taks á meðan björgunaraðgerðum stóð. Manninum um borð varð ekki meint af óhappinu.
Skömmu síðar barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um að björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson frá Ísafirði yrði kallaður út og færi til móts við bát sem varð vélarvana norður af Kögri. Báturinn verður færður til hafnar á Ísafirði. Þá varð annar bátur vélarvana laust eftir hádegi úti fyrir Vestfjörðum. Hann var tekinn í tog og dreginn til hafnar á Patreksfirði.
TF-LIF var send á vettvang en áhöfn hennar var til taks í Skagafirði á meðan björgunaraðgerðum stóð.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tónlistarmiðstöð formlega stofnuð og ný stjórn kynnt

    Alvarleg líkamsárás – Lögreglumenn veittu árásarþola fyrstu hjálp

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Lögreglan rannsakar alvarlegt atvik á hóteli – Einni hæð hót­els­ins lokað af sér­sveitinni

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Kona í gæsluvarðhaldi og grunuð um morð á dóttur og eiginmanni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Húsleit í miðborginni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?