• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 9. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

FA kvartar til Samkeppniseftirlitsins vegna ríkisstuðnings við endurmenntunardeildir

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. ágúst 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Félag atvinnurekenda hefur kvartað til Samkeppniseftirlitsins vegna niðurgreiðslu ríkisins á sumarnámi fyrr í sumar. 500 milljónir króna voru veittar til sumarnáms á háskólastigi og leiddi skoðun FA í ljós að verulegur hluti þeirrar fjárhæðar rann til endur- og símenntunarstofnana háskólanna og að námskeið, sem eru utan verksviðs háskólanna eins og það er skilgreint í lögum, voru niðurgreidd um tugi þúsunda króna. Viðkomandi starfsemi er í beinni samkeppni við námskeið á vegum einkarekinna fræðslufyrirtækja.
Í framhaldi af fjárveitingunni auglýstu endurmenntunardeildir háskólanna námskeið, sem alla jafna kosta tugi þúsunda, á þrjú þúsund krónur. Í kynningu á námskeiðunum kom fram berum orðum að þau væru niðurgreidd af menntamálaráðuneytinu. Keppinautar endurmenntunardeildanna gátu augljóslega ekki keppt við 3.000 króna námskeiðsgjald og þurftu í ýmsum tilvikum að fella niður sambærileg námskeið.
Að mati FA er þessi útfærsla á styrkjum til sumarnáms ólögmæt og brýtur í bága við samkeppnisreglur. Félagið telur ríkisstyrkinn annars vegar brjóta gegn 61. grein samningsins um Evrópska efnahagssvæðið um ólögmæta ríkisaðstoð, enda veita félagsmenn FA í fræðslugeiranum sumir hverjir þjónustu í samstarfi við fyrirtæki sem staðsett eru í öðrum EES-ríkjum. Félagið kvartaði til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna þess hluta málsins fyrr í sumar. Þá telur félagið ríkisstuðninginn ganga gegn ákvæðum 16. greinar samkeppnislaga um athafnir opinberra aðila, sem hafa skaðleg áhrif á samkeppni.
Fjárhagslegur aðskilnaður í heiðri hafður hjá EHÍ?
FA fer einnig fram á að Samkeppniseftirlitið skoði hvort starfsemi Endurmenntunar Háskóla Íslands (EHÍ) samræmist samkeppnislögum. Í reglum um EHÍ kemur fram að sé um að ræða útselda þjónustu, sem veitt sé í samkeppni við einkaaðila, skuli sú starfsemi fjárhagslega afmörkuð frá rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnislaga. Engu að síður fari ekki á milli mála að áðurnefndri fjárveitingu til Háskóla Íslands vegna sumarnáms hafi að hluta verið ráðstafað beint til Endurmenntunar HÍ til að niðurgreiða námskeið, sem veitt eru í beinni samkeppni við einkaaðila. FA fer m.a. fram á að Samkeppniseftirlitið skoði hvort fyrirmælum 14. greinar samkeppnislaga um fjárhagslegan aðskilnað og áðurnefndum ákvæðum í reglum um EHÍ sé fullnægt. FA fái ekki séð að reikningshald EHÍ sé að finna í ársreikningum Háskóla Íslands.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

    Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst lítur brotin alvarlegum augum

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Gekk um nakinn í íbúðarhverfi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut i Reykjavík í gærkvöldi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Tvö hundruð milljóna styrkur til innflytjenda

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?