Í gær handtók lögreglan fjóra einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við yfirstandandi rannsókn. Rannsóknin er í höndum embættis ríkislögreglustjóra sem hefur það hlutverk að rannsaka öll þau brot sem snúa að landráði, broti gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess. Rannsóknin snýr meðal annars að skipulagðri glæpastarfsemi og viðamiklum vopnalagabrotum.
Vopnuð sérsveit ríkislögreglustjóra tók þátt í aðgerðum ásamt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tveir af þeim sem voru handteknir voru taldir vopnaðir og hættulegir. Það er mildi að engan sakaði í aðgerðum lögreglu en handtaka fór skjótt og vel fram.
Vettvengur aðgerða hefur verið tryggður, hættuástandi afstýrt en viðbúnaður lögreglu var umfangsmikill og fóru aðgerðir fram víða á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal í Holtasmára í Kópavogi og í iðnaðarhverfi í Mosfellsbæ. Handtakan og ofangreinar aðgerðir lögreglu í dag eru hluti af yfirstandandi rannsókn lögreglunnar.
,,Við þökkum almenningi fyrir skilning á því að lögregla geti ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu og fyrir að fylgjast vel með staðfestum upplýsingum um málið á www.logreglan.is en þær verða uppfærðar. Telji einhver sig hafa upplýsingar sem geta aðstoðað við rannsókn málsins má koma þeim til lögreglu með tölvupósti á info@rls.is, ef erindið er brýnt er númerið 112.“ Segir í tilkynningu lögreglu