Leit að Renars Mezgalis hefur verið hætt. Hans hefur verið saknað frá 15. desember síðastliðnum. Bifreið hans fannst í flæðarmálinu í Þykkvabæjarfjöru daginn eftir og talið er að hann hafi lent í sjónum þar og sé látinn. Björgunarsveitir leita enn í fjörum á Suðurlandi.
Renars var fæddur árið 2000 og því aðeins 22 ára að aldri og í tilkynningu lögreglu segir:
Umfangsmikil leit hófst að beiðni aðstandenda hans að kvöldi 15. desember. Leitað var með drónum, gangandi og með sporhundum nokkuð stórt svæði í kring um bílinn og svæðið milli Þjórsár og Hólsár inn í landið og fjöruleit beggja vegna við það svæði. Þá aðstoðaði þyrla Landhelgisgæslu við leitina daginn eftir.
Formlegri leit að Renars Mezgalis sem fæddur var þann 11. júlí 2000 og hefur verið saknað frá því að bifreið hans fannst flæðarmálinu í Þykkvabæjarfjöru þann 16. desember s.l. hefur verið hætt. Talið er að hann hafi lent í sjónum þar og sé látinn. Renars var ókvæntur og barnlaus.
Björgunarsveitir hafa undanfarna daga leitað ströndina allt frá Þorlákshöfn og austurum ásamt því að áhafnir þyrlu Landhelgisgæslu hafa leita úr lofti og nú síðast í dag frá Knarrarósvita að Hjörleifshöfða en án árangurs. Áformað er að farnar verði eftirlitsferðir á leitarsvæðinu eftir því sem veðurfarslegar aðstæður og snjóalög leyfa á næstunni.