• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 14. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Átakshópur leggur til 40 aðgerðir til að bregðast við vanda á húsnæðismarkaði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. janúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Átakshópur um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði hefur skilað Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, tillögum sínum.
Að mati hópsins liggur óuppfyllt íbúðaþörf nú á bilinu fimm til átta þúsund íbúðir á landinu öllu. Mikil uppbygging íbúðarhúsnæðis er hins vegar fyrirhuguð á næstu árum og áætlað er að um tíu þúsund íbúðir verði byggðar á árum 2019–2021. Gangi þær áætlanir eftir mun óuppfyllt íbúðaþörf minnka til muna en hún verður engu að síður um tvö þúsund íbúðir í upphafi árs 2022.
Þrátt fyrir mikla uppbyggingu eru vísbendingar um að það framboð sem nú er að myndast muni síður henta tekju- og eignalágum. Stór hluti lítilla íbúða sem eru í byggingu á höfuðborgarsvæðinu er í hverfum þar sem fermetraverð er hvað hæst. Í þeim sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu þar sem fermetraverð er lægra virðist mest vera byggt af stærri íbúðum sem geta þar með síður talist hagkvæmar. Því er nauðsynlegt að ráðast í aðgerðir til að auka framboð hagkvæmra íbúða á viðráðanlegu verði til leigu og eignar.
Hópurinn leggur fram tillögur í eftirfarandi sjö flokkum. Tillögurnar eru 40 talsins og er að finna í skýrslu hópsins.

  1. Almennar íbúðir
    Stækkun kerfisins með stofnframlögum og hærri tekjumörkum
  2. Húsnæðisfélög
    Stuðningur við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög
  3. Leiguvernd
    Skýrari reglur á leigumarkaði án þess að það bitni á framboði
  4. Skipulags- og byggingarmál
    Endurskoðun regluverks til einföldunar og rafvæðing stjórnsýslu
  5. Samgönguinnviðir
    Hraðari uppbygging samgönguinnviða og almenningsamgangna
  6. Ríkislóðir
    Ráðstöfun ríkislóða fyrir íbúðir, þar á meðal fyrir leigumarkað
  7. Upplýsingamiðlun
    Samræmd söfnun og miðlun upplýsinga um húsnæðismál

Átakshópurinn var skipaður af Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, og hóf störf 5. desember sl. Hópinn skipuðu fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, fulltrúar sveitarfélaga og fulltrúar forsætis-, fjármála- og efnahags- og félagsmálaráðuneytis. Formenn hópsins voru Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri Íbúðalánasjóðs, og Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.
Sex undirhópar störfuðu með hópnum á tímabilinu og fjölluðu um útfærslu afmarkaðra verkefna. Haft var samráð við mikinn fjölda stofnana, sveitarfélaga og hagsmunaaðila og tugir sérfræðinga komu með einum eða öðrum hætti að vinnu hópsins.
Gögn sem fylgja fréttatilkynningunni:

  • Tillögur átakshópsins og fylgigögn
    Fylgigögn – Framboð
    Fylgigögn – Staða á leigumarkaði 
  • Glærur til kynningar á tillögum átakshópsins
  • Ný spá Íbúðalánasjóðs um íbúðaþörf næstu ára
  • Minnisblað – Löggjöf erlendis
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    220 deilingar
    Share 88 Tweet 55
  • Eftirlýst kona handtekin

    83 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hellti bjór yfir slasaðan hjólreiðamann

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    197 deilingar
    Share 79 Tweet 49
  • Ísland kaupir vopn fyrir Úkra­ínu – Heildar upphæð nemur ríflega 63 milljörðum

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?