Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mælti fyrir tillögu til þingsályktunar um tímasetta aðgerðaáætlun um einföldun regluverks. Þetta er í þriðja sinn sem þingflokkur Miðflokksins hefur lagt þetta mál fram á Alþingi.
,,Báknið stækkar við erfiðleika og í góðæri, það er alveg sama hvenig staðan er hjá þjóðinni, báknið stækkar alltaf hjá núverandi stjórnarflokkum“ Sagði Sigmundur Davíð m.a.
Jakob Frímann Magnússon þingmaður hjá Flokki fólksins, fagnaði framlagningu frumvarpsins og þakkaði fyrir það og sagðist vera áhugasamur um að fylgja eftir frumvarpi Miðflokksins.
Sigmundur Davíð þakkaði Jakobi Frímanni fyrir og fagnaði þeim krafti og fersku vindum sem hann hefði orðið var við, með komu Jakobs Frímanns á Alþingi. Enda maður með mikla reynslu af samfélagsmálum og með glögga sýn á þjóðmálin.
Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að hafa forgöngu um að ríkisstjórnin geri tímasetta aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Við vinnuna verði miðað við að uppfylla að minnsta kosti markmið stöðuskýrslu ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur um einföldun gildandi regluverks frá september 2014 og sértækar jafnt sem almennar aðgerðir útlistaðar og tímasettar. Forsætisráðherra kynni Alþingi aðgerðaáætlunina á vorþingi 2022.
https://www.althingi.is/altext/upptokur/lidur/?lidur=lid20220119T162040