Aðstoðarráðherra handtekinn grunaður um gengdarlausa spillingu
Hann er grunaður um að hafa þegið andvirði fimmtíu og sjö milljóna króna frá fyrirtækjum gegn því að skrifa upp á samninga um kaup ríkisins á ýmsum búnaði á margföldu verði.
Vasyl Lozynki, aðstoðarráðherra innviða í Úkraínu, var handtekinn á heimili sínu á laugardag. Stofnun sem hefur eftirlit með spillingu í landinu hefur Lozynki til rannsóknar. Fjallað er ítarlega um málið á vef ríkisútvarpsins.
Umræða