Kvíði fólks vegna COVID-19 ekki verið jafn lítill síðan í september
Það hafa orðið miklar breytingar frá síðustu mælingu hjá Gallup vegna ótta fólks við Covid-19 eins og könnunin sýnir:
- Ótti við smit minnkar enn og hefur ekki verið jafn lítill síðan í júní í fyrra
- Áhyggjur af bæði heilsufarslegum og efnahagslegum áhrifum faraldursins minnka. Áhyggjur af heilsufarslegum áhrifum hafa ekki verið minni síðan í september, og áhyggjur af efnahagslegum áhrifum hafa ekki verið jafn litlar síðan í júlí í fyrra.
- Þrátt fyrir að sóttvarnaryfirvöld hafi ekki lagt til tilslakanir á persónubundnum sóttvörnum viðhafa nú færri breyttar venjur vegna COVID-19, en þeim fækkar sem:
- þvo eða spritta oftar/betur hendur sínar, og líka þeim sem þvo eða spritta oftar/betur umhverfi sitt
- nota hlífðarbúnað eins og grímu eða hanska í ákveðnum aðstæðum
- forðast að eiga óþarfa samskipti við annað fólk
- forðast fjölfarna staði og/eða fjölsótta viðburði
- forðast faðmlög og/eða kossa
- vinna heiman frá sér að hluta til eða öllu leyti
- snerta sjaldnar andlit sitt
- hósta eða hnerra síður út í loftið, og einnig þeim sem hósta eða hnerra síður í lófa
- kaupa frekar inn þannig að þeir eigi umframbirgðir
Þó fólk sé eitthvað farið að slaka á varðandi faðmlög og kossa virðist sú hefð að heilsast með handabandi ekki hafa komið til baka að sama skapi. Annað sem hefur ekki breyst er að fólk verslar enn frekar á netinu, en það gæti þó mögulega núna verið vegna þæginda frekar en í sóttvarnarskyni og spurning hvort sú hegðun sé að einhverju leyti komin til að vera. Hlutfall þeirra sem stunda nám heiman frá sér að hluta til eða öllu leyti helst einnig óbreytt.
- Kvíði fólks vegna COVID-19 minnkar og hefur ekki verið jafn lítill síðan í september. – Gallup
Umræða