• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Laugardagur, 3. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Börn og samskipti á internetinu

ritstjorn by ritstjorn
23. mars 2019
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Börn og samskipti á internetinu – Áskoranir og tækifæri

Málþing um börn og samskipti á internetinu verður haldið í Skriðu, Háskóla Íslands að Stakkahlíð 2, föstudaginn 22. mars milli 14 og 16. Lykilfyrirlesari er Fred Langford, forseti INHOPE, alþjóðlegra regnhlífasamtaka ábendingalína og aðstoðarframkvæmdastjóri Internet Watch Foundation. Í erindi sínu mun Langford fjalla um alþjóðlegt samstarf til að útrýma kynferðislegu ofbeldi gegn börnum á Netinu og um helstu áskoranir sem foreldrar, fagaðilar og opinberir stefnumótunaraðilar standa frammi fyrir til að tryggja öryggi barna á Netinu.
Málþingið er haldið í samstarfi nefndar stjórnvalda um mótun stefnu í forvörnum og fræðslu með það að markmiði að útrýma kynferðislegu ofbeldi og áreitni, Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Lögreglunnar á Suðurnesjum, ábendingalínu Barnaheilla og SAFT – Samfélag, fjölskylda og tækni, sem er samstarfsverkefni Heimilis og skóla, Rauða krossins, Ríkislögreglustjóra og Barnaheilla.
Erindi Freds Langford verður á ensku en málþingið fer að öðru leyti fram á íslensku.
Dagskrá
14:00 Setning
14:05 Internetið og mótun stefnu í forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi. Halla Gunnarsdóttir, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum og formaður nefndar um mótun stefnu í forvörnum og fræðslu með það að markmiði að útrýma kynferðislegu ofbeldi og áreitni
14:15 „Online safety and future technology”
Fred Langford, forseti INHOPE, alþjóðlegra regnhlífasamtaka ábendingalína og aðstoðarframkvæmdastjóri Internet Watch Foundation
15:00 Pallborðsumræður: „Meðvitund um öryggi barna á internetinu“
Þátttakendur:
Sólveig Jakobsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, verkefnastýra Sjúkást hjá Stígamótum
Eiríkur Guðni Ásgeirsson, rannsóknarlögreglumaður, Lögreglan á Suðurnesjum
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri Lögreglunnar á Suðurnesjum
Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla
Andrea Marel, deildarstjóri unglingastarfs, Tjörnin frístundamiðstöð
Þóra Jónsdóttir, verkefnastjóri ábendingalínu Barnaheilla
Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur í Barnahúsi
Embla Rún Pétursdóttir og Birna Guðlaugsdóttir, Ungmennaráði SAFT
Anna Kristín Newton, sálfræðingur
15:40 Kynning á nýrri tilkynningasíðu Barnaheilla og SAFT
Þóra Jónsdóttir og Aldís Yngavdóttir
15:50 Trigger warning
Sólborg Guðbrandsdóttir, athafnakona
16:00 Málþingi slitið
Málþingsstjóri: Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar

  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Bjartviðri og allt að 20 stiga hiti

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Björguðu sex manns úr vatni

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Mótmæli við Alþingi – ,,Vanhæf ríkisstjórn“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?