• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 24. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Heimkoma Herjólfs háð samningum við skipasmíðastöðina

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. mars 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Crist S.A. gerir kröfur um viðbótargreiðslu

Skipasmíðastöðin Crist S.A. sem hefur nánast lokið smíði nýs Herjólfs gerir kröfu um viðbótargreiðslur sem ekki eru í samræmi við samninginn um smíðina. Kröfunni hefur verið hafnað og Vegagerðin boðið stöðinni að ljúka greiðslum samkvæmt samningi, fá skipið afhent en vísa ágreiningi um viðbótargreiðslur til þriðja aðila til úrlausnar. Smíði Herjólfs er á lokastigi enn er þó  eftir að ljúka minniháttar lagfæringum og prófunum auk þess sem Samgöngustofa hefur ekki lokið sinni skoðun og staðfest að gefa megi út haffærnisskírteini. Miðað við eðlilega framvindu ætti þessum verkum að vera lokið öðru hvoru megin við næstu mánaðamót.
Vegagerðin hefur átt í viðræðum við skipasmíðastöðina Crist S.A. í Póllandi um lokauppgjör vegna smíðinnar en samkomulag liggur ekki fyrir. Skipasmíðastöðin hefur sett fram kröfu um viðbótargreiðslu sem er ekki í samræmi við samning aðila vegna smíðinnar. Skriflegir samningar hafa verið gerðir vegna allra aukaverka sem til hafa fallið á smíðatímanum bæði hvað varðar verð og hugsanlegar tafir. Af þessum sökum telur Vegagerðin að megindrættir lokauppgjörs liggi fyrir með skýrum hætti.
Vegagerðin hefur leitað ráðlegginga erlendra sérfræðinga á þessu sviði varðandi viðbrögð við kröfum stöðvarinnar og er niðurstaðan að krafa skipasmíðastöðvarinnar um viðbótargreiðslu eigi sér ekki stoð í samningi aðila og hefur henni því verið hafnað. Vegagerðin hefur lagt til að stöðin afhendi ferjuna í lok næstu viku gegn því að Vegagerðin greiði lokagreiðslu í samræmi við samning auk þess að gera upp samþykkt aukaverk, en kröfu stöðvarinnar um viðbótargreiðslu verði vísað til þriðja aðila til úrlausnar í samræmi við samning. Stöðin hefur ekki fallist á þetta en heldur fast við kröfu sína um viðbótargreiðslu umfram samning og samþykkt aukaverk. Gert er ráð fyrir að það skýrist frekar í næstu viku hvort grundvöllur sé fyrir samkomulagi um framhald málsins en þar til það liggur fyrir verður áfram óvissa um hvenær stöðin hyggst afhenda ferjuna.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir eru látnir eftir bruna í fjölbýlishúsi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Lögreglan leitar manns

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    158 deilingar
    Share 63 Tweet 40
  • Þorsteinn Már Baldvinsson hættir sem forstjóri Samherja

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?