Mjög umdeild er ákvörðun sjávarútvegsráðherrans Kristjáns Þórs Júlíussonar um það að veita einu fyrirtæki leyfi til hvalveiða á Íslandi og m.a. án samráðs við Vinstri græna sem eru á móti hvalveiðum.
Þá er ferðaþjónustan sem að skilar mestum tekjum á Íslandi einnig alfarið á móti ákvörðuninni. Hér að neðan er hægt að nálgast upplýsingar um hvalveiðar við Ísland frá 1863-2018.
Hagtölur um hvalveiðar við Ísland eru nú birtar fyrir tímabilið 1863 til 2018 undir sögulegum hagtölum. Í gögnunum má m.a. sjá hvernig hvalveiðar hafa staðið yfir með hléum, allt frá upphafi veiða og fram til dagsins í dag. Tölur um útflutt magn hvalafurða eru einnig birtar fyrir tímabilið.
Gögnin eru einnig hluti af sjávarútvegstölfræði, frá árinu 2000. Þar koma fram tölur um útflutningsverðmæti, til viðbótar við útflutt magn.
Þeir sem að hafa áhuga á að kynna sér málið, geta kynnt sér það hér
https://www.fti.is/2018/09/25/kristjan-loftsson-segir-ad-hvalveidar-eiga-storan-thatt-i-hve-ferdaidnadurinn-hefur-dafnad/
https://www.fti.is/2019/01/17/hagfraedistofnun-skilar-skyrslu-um-thjodhagsleg-ahrif-hvalveida/