Húsgagnamarkaðurinn ehf. var lýstur gjaldþrota og lauk skiptum nú í mars. Eigendur félagsins voru tveir en við gjaldþrotaskiptin var Málfríður Vilhelmsdóttir í stjórn gjaldþrota húsgagnasölunnar
Rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrir síðasta rekstrarárið 2023 hjá Skattstofunni, sýnir að eina eign félagsins voru aðeins 37.942 krónur. Málfríður Vilhelmsdóttir er jafnframt helsti eigandi að Heimahúsinu ehf. en Fasteignamarkaðurinn ehf. var skráður til húsa í Ármúla 8, skv. tilkynningu skiptastjóra í Lögbirtingablaðinu, hér að neðan.
Gjaldþrotið nam 32.875.502 krónum
Engar eignir fundust í búinu og var skiptum í því lokið 2. mars 2026 samkvæmt 155. gr. laga nr. 21/1991 án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur, auk áfallinna vaxta og kostnaðar eftir úrskurðardag gjaldþrotaskipta.
Engar eignir fundust í þrotabúinu
Lýstar kröfur töpuðust að fullu í þrotabú Húsgagnamarkaðarins ehf. þar sem engar eignir fundust í vörslu félagsins og námu lýstar og tapaðar kröfur kr. 32.875.502.
Húsgagnamarkaðurinn var skráður sem; smásala á húsgögnum í sérverslunum og heildverslun með húsgögn, teppi og ljósabúnað.
Miljarð króna gjaldþrot á fasteign sem hýsir Heimahúsið – Engar eignir fundust
Miljarð króna gjaldþrot á fasteign sem hýsir Heimahúsið – Engar eignir fundust
Umræða


