Umferð og samkomur gengu vel fyrir sig á Vestfjörðum þrátt fyrir mikinn fjölda gesta undanfarna daga. Lögreglan hefur verið með aukið umferðareftirlit og sýnilegri en oft áður. Markmiðið var að tryggja almennt öryggi og ekki síst umferðaröryggi íbúa og gesta.
Alls voru 66 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir að virða ekki hámarkshraða. Flestir þessara ökumanna voru stöðvaðir í Strandasýslu og Ísafjarðardjúpi. Einn ökumannanna var sviptur ökuréttindum strax, til bráðabirgða, enda ók hann á tvöföldum hámarkshraða, eða á 66 km hraða þar sem hámarkshraði er 30 km. Það var innanbæjar á Ísafirði.
Fjöldi umferðaróhappa má telja á fingrum annarar handar. Engin alvarleg slys urðu á vegfarendum, þ.e.a.s. ökumönnum, farþegum eða öðrum. Þó varð ungur drengur fyrir því að lenda á hlið bifreiðar. Drengurinn var á reiðdhjóli og tókst ekki að stöðva í tæka tíð þegar komið var að gatnamótum. Þetta var innanbæjar á Ísafirði. Hann hlaut ekki teljandi áverka.
Tveir ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir að vera ölvaðir við akstur. Annar þeirra hafði ekið inn í húsagarð á Flateyri en hinn var stöðvaður í umferðareftirliti á Ísafirði.
Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að virða ekki umferðarlög er lúta að lagningu ökutækja. Allir höfðu þeir lagt ólöglega á Ísafirði, sem dæmi upp á gangstétt sem hindraði umferð gangandi vegfarenda.
Einn ökumaðurinn af þeim sem lögreglan stöðvaði sl. daga reyndist vera með útrunnin ökuréttindi og var akstur hans því stöðvaður. Annar ökumaður var kærður fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu á gatnamótum. Hvoru tveggja var á Ísafirði.
Tónleikahald í tengslum við rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, fór mjög vel fram. Mótshaldarar telja aðsóknarmet hafi verið slegið þetta 15. ár sem tónleikarnir hafa verið haldnir. Ástæða er til að hrósa þeim sem að hátíðinni stóðu sem og öllu starfsfólki og ekki síst þeim gestum sem sóttu tónleikana.
Um kl.03:00 þann 19. apríl urðu lögreglumenn í eftirlitsferð á Ísafirði varir við reyk við einbýlishús við Seljalandsveg. Lögreglumenn vöktu íbúana, hjón og tvö börn þeirra, og slökktu eldinn. Eldurinn virðist hafa kviknað í sólpalli við húsið og hafði eldurinn náð að læsa sig í timburveggklæðningu hússins. Betur fór en á horfðist.
Eitt fíkniefnamál kom upp um helgina. En þá varð á vegi lögreglunnar aðili í miðbæ Ísafjarðar sem lögregluna grunaði að væri með fíkniefni á sér. Við leit reyndist það rétt. Um var að ræða líltilræði af kannabisefnum.
Fyrr í vikunni barst tilkynning um að eldur væri laus í fiskibáti út á Breiðafirði, n.t.t. um miðjan dag þann 17. apríl. Þrír menn voru í áhöfn bátsins. Áhöfninni tókst að halda eldinum í skefjum, en hann var einangraður við vélarrúmið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en henni snúið við þegar ljóst var að eldurinn hafði verið slökktur og nærstaddur bátur kom til aðstoðar. Báturinn var drenginn til hafnar á Brjánslæk þar sem slökkviliðið í Vesturbyggð gekk úr skugga um að eldurinn væri slökktur. Áhöfninni varð ekki meint af þessu atviki. Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar tildrög eldsins.
Að kveldi þess sama dags, 17. apríl, var tilkynnt um eld í sorpgámi skammt frá íþróttavelli á Tálknafirði. Nærstöddum tókst að slökkva eldinn og var ekki þörf á slökkviliðinu. Grunur leikur á að börn hafi kveikt eldinn. Málið er til rannsóknar.
Um nýliðna helgi fór þyrla Landhelgisgæslunnar í eftirlitsflug yfir Strandir, Jökulfirði og Hornstrandafriðlandið. Með í för var lögreglumaður frá lögreglunni á Vestfjörðum og starfsmaður Hornstrandastofu, n.t.t Umhverfisstofnunar. Flogið var yfir svæðið til að skoða ástand þess. Þá var horft til þess hvort á svæðinu væru vélknúin ökutæki, hvort um svk. utanvegaakstur væri að ræða, ekið í friðlandinu og ástand ökumanna. Mjög snjólétt er á svæðinu og engin ökutæki sáust í þessari ferð. Hér að neðan er hlekkur um þær reglur sem gilda um Hornstrandafriðlandið.
https://www.ust.is/…/fridlyst-svae…/vestfirdir/hornstrandir/