Mikill fjöldi fólks er saman kominn á Austurvelli til að mótmæla sölunni á Íslandsbanka í dag. Mótmælendurnir krefjast þess að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segi af sér og sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka verði rift. Bankasýslan mun verða lögð niður á næstu dögum.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er ein þeirra sem er mikil baráttukona fyrir breytingum og hún skrifar:
Ríkisstjórn Geirs H Haarde var felld með aðeins tveimur samstöðufundum
Icesave var fellt
Nýr forseti kosinn
Bankastjóri Seðlabankans rekinn fyrir tilstuðlan almennings
Afsögn Hönnu Birnu knúin fram af vilja fólksins
Afsögn Sigríðar Andersen knúin fram af vilja fólksins
Sigmundur Davíð – felldur með vilja fólksins
Metoo – viðhorf til kynferðisbrotamála gjörbreytt fyrir tilstuðlan kröftugra mótmæla og umræðu almennings
Fjöldi hælisleitenda hefur aukist fyrir tilstuðlan og óskir almennings um opnara og örlátara samfélag
Launakjör einstakra starfsstétta hafa lagast fyrir tilstuðlan samstöðu fólks á vinnumarkaði
Það er mikil ástæða til bjartsýni ef skoðað er hvað samstöðu/mótmælafundir á Austurvelli hafa áorkað. Þess vegna er það beinlínis rangt að halda því fram að slík samstaða fólks sé til einskis Allt of oft heyrir maður fólk tala af uppgjöf og segja að ekkert breytist, þetta sé bara svona, að við látum bjóða okkur hvað sem er – en það er bara alls ekki raunin.
Við höfum bara á allra síðustu árum knúið fram breytingar með samstöðu og háværum óánægjuöldum en síðast en ekki síst voninni um eitthvað manneskjulegra og betra. Ég endurtek :
- Ríkisstjórn Geirs H Haarde var felld með aðeins tveimur samstöðufundum.
Icesave var fellt.
Nýr forseti kosinn.
Bankastjóri Seðlabankans rekinn fyrir tilstuðlan almennings.
Afsögn Hönnu Birnu knúin fram af vilja fólksins.
Afsögn Sigríðar Andersen knúin fram af vilja fólksins.
Sigmundur Davíð – felldur með vilja fólksins.
Metoo – viðhorf til kynferðisbrotamála gjörbreytt fyrir tilstuðlan kröftugra mótmæla og umræðu almennings.
Fjöldi hælisleitenda hefur aukist fyrir tilstuðlan og óskir almennings um opnara og örlátara samfélag.
Launakjör einstakra starfsstétta hafa lagast fyrir tilstuðlan samstöðu fólks á vinnumarkaði.
Ég er örugglega að gleyma mörgu!
Flestar stór breytingar síðustu 15 ára voru knúnar fram af vilja fólksins, samstöðu og kröfu um breytingar til batnaðar.
Við getum breytt heiminum. Það eina sem þarf er vonin og svo auðvitað að leggja sitt af mörkum. Þess vegna skulum við mæta á Austurvöll og vera saman og skammast okkar ekki fyrir þá eðlilegu kröfu að hér verði til réttlátara samfélag.
Austurvöllur kl 13:45 en þá syngur Páll Óskar okkur í gang og fundur hefst svo kl 14:00!
https://gamli.frettatiminn.is/18/04/2022/eldraeda-sera-davids-myndband/