• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

Guðmundur Franklín forsetaefni með 43% fylgi og kosningabaráttan ekki byrjuð – Skjaldborg um nýjan forsetaframbjóðanda

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
23. maí, 2020
0 0
Miklar breytingar á kvótakerfinu, frjálsar makrílveiðar og grásleppa ekki í kvóta

Guðmundur Franklín Jónsson

Halla mældist með 1% í byrjun en vann svo næstum forsetakosningarnar

Guðmundur Franklín Jónsson forsetaefni, er hrærður yfir þeim mikla stuðningi sem fram kom í nýrri könnun hjá Reykjavík síðdegis sem sýndi hann með 43 prósenta stuðning á móti 57 prósenta stuðningi við Guðna

„Ég er bara rétt að hefja framboðið og kynna mig og fyrir hvað ég stend og er bara hrærður yfir því hvað þjóðin er að taka mér vel svona á fyrstu metrunum. Hann bendir jafnframt á að Halla hafi fyrir fjórum árum, þegar hún var á fyrstu metrunum, aðeins verið með eitt prósent fylgi í könnunum en vann svo næstum því kosningarnar,“ sagði Guðmundur Franklín Jónsson forsetaefni Íslands, í dag.

Þjóðin slær skjaldborg um nýjan forsetaframbjóðanda

Guðmundur Franklín Jónsson talaði um spillinguna í kvótakerfinu og segir að gefa eigi strandveiðarnar frjálsar strax – ,,Kvótakerfið er bara æðislegt kerfi fyrir örfáa aðila sem græða á spillingunni.“

Hann segir að hvar sem hann komi þá finni hann mikinn meðbyr með forsetaframboði sínu og fólk úti á götu taki hann spjalli og vilji oft jafnframt fá mynd af honum með sér og að það sé bara gaman af því.
Þá berjist hann gegn spillingunni á Íslandi og sé maður fólksins. Orkupakkamálið mun fara í þjóðaratkvæðagreiðslu á minni vakt og svo þarf að umbylta kvótakerfinu sem er spillt og rotið. Það á að opna fyrir nýliðun þannig að ungir menn geti hafið sjósókn og gefa á strandveiðar frjálsar enda vistvænar og skaðlausar.
Þá vill Guðmundur Franklín að raforkuverð til bænda og framleiðslufyrirtækja verði snarlega lækkað og að lögð verði áhersla á innlenda framleiðslu matvæla í stað innflutnings.

Guðni harðlega gagnrýndur – Trúður á Bessastöðum

,,Trúður á Bessastöðum”

Á ýmsum spjallsíðum sem Fréttatíminn hefur skoðað eru hópar fólks sem hefur slegið skjaldborg um embætti Guðmundar Franklíns Jónssonar, forsetaefnis, sem bjargvættar þjóðarinnar gegn siðblindum ráðherrum og þingi. T.d. segir einn aðili inn á lokuðum hóp ,,Guðmundur Franklín Jónsson er okkar síðasta hálmstrá gegn siðblindum ráðherrum”

Trúður á Bessastöðum

,,Guðni trúður með buff og sitthvorn sokkinn, gæti kannski fengið vinnu á leikskóla eftir kosningar. Kannski!  P.s. Ananas eins og eitt leikskólabarnið minnti mig á er svo þriðja atriðið sem þessa “forseta” verður minnst fyrir er: ANANAS 😀 TRÚÐUR.COM  – Við þurfum fullorðna manneskju í þetta alvöru starf. Við erum að tala um æðsta embætti Íslands!” Segir í einni athugasemd.

Ég mun kjósa Guðmund Franklín Jónsson

Annar segir: ,,Ég mun kjósa Guðmund Franklín Jónsson verðandi forseta Íslands. Loksins kominn maður sem ætlar að berjast gegn spillingunni og Elítunni sem henni stjórnar á Íslandi. Þeir sem kjósa annað, eru annaðhvort í spillingunni eða heimskir, það er ekkert þar á milli. Guðni er framlengin af siðspilltum stjórnmálamönnum og klíku sem kom honum í þennan stól til að láta hann kvítta á öll ólög sem hugsast getur. Ólafur Ragnar og Guðmundur Franklín munu verða þeir forsetar sem sagan mun skrifa vel um. Þetta embætti er bara fyrir alvöru menn, ekki aumingja!”
Það er ljóst að það er hiti í fólki á Íslandi og líklega verða þessar kosningar sögulegar þegar upp verður staðið ef marka má hitann í fólki.

Forsetinn er eini öryggisventill þjóðarinnar

Guðmundi Franklín þykir það mikilvægt að forsetinn sé þjóðkjörinn vegna þess að þingmenn og ríkisstjórnir geri stundum mistök og þá sé forsetinn „eini öryggisventillinn í rauninni“ fyrir þjóðina til að nýta málskotsrétt sinn.

Guðni vildi borga Icesasve

„Ímyndaðu þér til dæmis eins og ef Icesave hefði flogið í gegn og Ólafur Ragnar Grímsson hefði ekki stoppað Icesave, við værum ennþá að greiða af því núna og við gætum alls ekki greitt þessar greiðslur. Við værum gjaldþrota eflaust í dag, miðað við Covid- ástandið sem nú er og við vitum ekkert um framtíð okkar,“ segir Guðmundur Franklín Jónsson forsetaefni um mikilvægi þess að alvarlega sé tekið á málum af hálfu forseta Íslands á óvissutímum.
„Við verðum að hafa öryggisventil á Bessastöðum og stoppa svona borðleggjandi mál af sem allir skilja. Það skilja allir þennan orkupakka þó þetta sé gert flókið. Þetta skiptir þjóðina mjög miklu máli og þjóðin skal ávalt fá að ráða í svona veigamiklum málum eins og í auðlindamálum þjóðarinnar og ég tala nú ekki um kvótakerfið sem er meingallað.
Málsskotsrétturinn er mikilvægur á Íslandi og þá er ég er að tala um ákveðin mál sem þjóðin vill ekki að nái fram að ganga vegna sérhagsmuna. það sem skiptir mig máli er að þjóðin hafi öryggisventil á Bessastöðum til þess að stoppa af ólög.“ Segir Guðmundur Franklín Jónsson, sem leggur áherslu á að vinna með, og fyrir þjóðina, sem næsti forseti Íslands.
https://frettatiminn.is/forseti-thann-27-en-forsetaefni-thangad-til/

DeilaTweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Leynd yfir 1.375.705.025 kr. greiðslu til 26 fyrirtækja

    267 deilingar
    Deila 267 Tweet 0
  • Kvótinn innkallaður og útgerðarmenn sviptir veiðiheimildum

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Allur fiskur á markað innanlands og lokað á erlent eignarhald í sjávarútvegi

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Bílatrygging á Íslandi kostar 150.000 kr. en 34.672 kr. í nágrannalöndum

    1050 deilingar
    Deila 1050 Tweet 0
  • Smávinningur varð að þeim stóra

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?