• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Lífsstíll
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Lífsstíll
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

Lögregla kölluð út til að stöðva kynlíf

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
23. janúar, 2021
0 0

 

Þau eru ófá símtölin til lögreglunnar þar sem fólk kvartar undan hávaða enda eiga þau sér stað flesta daga ársins og iðulega nokkrum sinnum á dag. Tilefni kvartananna er misjafnt, en hátt stillt tónlist er þar ofarlega á baugi. Allskonar framkvæmdir með tilheyrandi hávaða fær líka iðulega fólk til að hringja í lögregluna. Sama má segja um hávaðasöm rifrildi, en þá kunna eðlilega að vakna áhyggjur um að ofbeldi sé beitt.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Það síðastnefnda virtist eiga við í ónefndu húsi í umdæminu nýverið og var lögreglan fljót á vettvang. Barið var valdsmannslega á útidyrahurðina hjá íbúunum þaðan sem hávaðinn barst, en sá sem tilkynnti um málið var mjög áhyggjufullur um það sem gekk á. Þegar opnað var blasti við lögreglumönnunum karlmaður á adamsklæðunum og var sá heldur hissa á þessari heimsókn laganna varða.

Maðurinn var spurður hvort hann væri einn í íbúðinni og sagði hann svo ekki vera, en á bak við hann birtist kona og kom í dyragættina. Ekki var að sjá að neitt amaði að henni og þvert á móti virtist hún vera alsæl. Aðspurð um hávaðann sögðust þau hafa verið að stunda kynlíf og játuðu að því hefði fylgt nokkur hávaði.

Ekki þótti ástæða til að leggja frekari spurningar fyrir skötuhjúin, en greinilegt var að þeim þótti koma lögreglunnar heldur vandræðaleg.
Þau voru kvödd við svo búið og vinsamlegast beðin um að hafa lægra við iðju sína í húsinu og tóku skötuhjúin vel í tilmælin.

DeilaTweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Lögregla kölluð út til að stöðva kynlíf

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Þóttust vera eftirlitsmenn MAST

    24 deilingar
    Deila 24 Tweet 0
  • Skotárás á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins

    82 deilingar
    Deila 82 Tweet 0
  • Féll ofan í Kleifarvatn

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Eigandinn vill ekki selja Íslandsbanka

    41 deilingar
    Deila 41 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Lífsstíll

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?