Styrmir Elvar Jóhannesson hefur stöðu grunaðs manns í lögreglumáli sem Rannsóknarlögreglan á Íslandi vinnur að. Styrmir Elvar er búsettur í Grimstad í Noregi og gengur einnig undir nafninu og Stig Johansen , Stig Johannesson og Stig Johannsson þar í landi samkvæmt staðfestum og skriflegum upplýsingum frá Noregi sem Fréttatíminn hefur undir höndum.
Styrmir Elvar er kærður fyrir alvarleg brot, rangar sakargiftir skv.148 gr. hegningarlaga sem hljóðar skv. þeim lögum upp á 10 ára fangelsi og í alvarlegum tilfellum að mati dómara, fangelsi ekki skemur en 2 ár og allt að 16 árum. Þá hafa sjö aðilar á Íslandi óskað eftir nálgunarbanni hjá lögreglu á hendur Styrmi Elvari en samkvæmt málsgögnum er Styrmir Elvar Jóhannesson sagður hafa áreitt sumt fólkið um árabil og honum lýst sem eltihrelli í þeim skýrslum sem liggja fyrir í málinu.
Þá hefur rannsóknarlögreglan m.a. upptöku af símtali sem Styrmir Elvar Jóhannesson átti við yfirvöld á Íslandi þar sem Styrmir er talinn ljúga upp á bróður sinn að nafni, Eggert Skúli Jóhannesson, röngum sakargiftum í þeim tilgangi að eyðileggja mannorð hans og stuðla að velferðarmissi og miska. Lögreglan hlóðritaði samtalið með eigin tæknibúnaði og varðveitir það sem sönnunargagn. Lögreglan er segir m.a. í lögregluskýrslu að rökstuddur grunur sé fyrir því að Styrmir Elvar Jóhannesson sé sekur um refsiverða háttsemi.
Rannsóknarlögregla rakti símtalið til farsímanúmers Styrmis Elvars í Noregi sem hann hefur haft í tæp þrjátíu ár og raddupptakan hefur verið staðfest af vitni, þ.e að um rödd Styrmis Elvars Jóhannnessonar sé um að ræða, þrátt fyrir að Styrmir Elvar neiti sök. Símtalið var rakið til heimilis Styrmis í Grimstad í Noregi. En í símtalinu sagðist sá sem hringdi vera í Dublin á Írlandi og einhverjar fleiri, ótrúlega skrautlegar skýringar, er einnig hægt að lesa um í málsgögnum Rannsóknarlögreglu. Þá eru mun fleiri mál sem koma fram í gögnunum er varða Styrmi Elvar sem ekki er hægt að birta vegna rannsóknarhagsmuna en fylgst verður með framvindu málsins sem er enn í tímafrekri rannsókn lögreglu. Fimm manns hafa nú þegar lagt fram mál á hendur Styrmi Elvari Jóhannessyni á Íslandi, samkvæmt gögnunum í þessu máli.
Til fróðleiks:
,, 148. gr. segir m.a. Hver, sem með rangri kæru, röngum framburði, rangfærslu eða á annan hátt leitast við að koma því til leiðar, að saklaus maður verði sakaður um eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað, skal sæta … 1) fangelsi allt að 10 árum. Við ákvörðun refsingar skal hafa hliðsjón af því, hversu þung hegning er lögð við broti því, sem sagt er eða gefið til kynna, að viðkomandi hafi drýgt. … 2) Hafi brot haft eða verið ætlað að hafa í för með sér velferðarmissi fyrir nokkurn mann, þá skal refsað með fangelsi ekki skemur en 2 ár og allt að 16 árum.
Fréttin hefur verið uppfærð og fylgst verður með framvindu málsins……
https://frettatiminn.is/eltihrellir-lygur-upp-a-eggert-skuli-johannesson-upplogin-nidgrein/