• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ný gögn sýna glögglega að ris er að eiga sér stað

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. maí 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Talsverð skjálftavirkni á Reykjanes skaganum. Ný gögn sýna glögglega það ris sem er að eiga sér stað

Nýjar gervihnattamyndir hafa borist úr Sentintel-1interferogram en eru þær frá 27. apríl – 21. maí 2022. Þar sést að landris hefur verið í kringum 40-45 mm síðan að nýjasta jarðskjálftahrinan hefur staðið yfir.

23.05.-mynd20220427-20220521

Nýjustu upplýsingar sem sýnir það ris sem hefur orðið frá 27. apríl-21. maí. (Myndvinnsla: Veðurstofan, Vincent Drouin)

Um 400 jarðskjálftar mældust með SIL sjálfvirku staðsetningarkerfi Veðurstofunnar á liðnum sólarhring. Í dag 23. maí kl. 07:15 mældist jarðskjálfti af stærð 3,5 um 3 km austnorðaustan við Þorbjörn. Hans varð vart á Reykjanesskaganum og að höfuðborgarsvæðinu. Í gærkvöldi, 22. maí kl. 23:13, varð jarðskjálfti af stærðinni 3,0 á sömu slóðum.

23.05.2022decomp

 

Nýjustu upplýsingar sem sýnir það ris sem hefur orðið frá 27. apríl-21. maí. (Myndvinnsla: Veðurstofan, Vincent Drouin)

Uppfært 19.05 kl 15:37

 

Í dag komu ný gögn fram úr Sentinel-1 interferogram frá seinustu 12 dögum eða frá 7.-19. maí 2022.

Þar sést nokkuð glögglega það ris sem er að eiga sér stað í kringum Svartsengi, en það mælist 2-2,5 sm á tímabilinu. 20220507-20220519

Nýjustu upplýsingar sem sýnir það ris sem hefur orðið frá 7.-19. maí. (Myndvinnsla: Veðurstofan, Vincent Drouin)

Uppfært 16.05 kl 13:00

Jarðskjálftavirkni heldur áfram á Reykjanesskaga og hafa mælst yfir 3000 skjálftar á svæðinu við Eldvörp á Reykjanesi undanfarna viku. Síðan í gær, 15. maí, hafa mælst níu skjálftar yfir 3 af stærð og tveir yfir 4 af stærð. Stærsti skjálftinn var 4,3 af stærð og varð 15. maí klukkan 17:38. Talið er að mesta skjálftavirknin sé á 4-6 km dýpri.

Samkvæmt GPS mælaneti á Reykjanesskaganum og InSAR gervihnattamyndum eru færslur á yfirborði jarðar sem sýna þenslumerki sem bendir til kvikusöfnunar vestur af Þorbirni, líklega vegna kvikusöfnunar. Samkvæmt frumniðurstöðum er þetta á 4-5 km dýpi.

Í ljósi kvikusöfnunar og þenslumerkja á Reykjanesi hefur VONA fluglitakóðinn verið færður frá grænu yfir á gulan.

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hafa lýst yfir óvissustigi Almannavarna frá og með 15. maí.

Csk_asc_21apr-08mai

 

 

Nýjustu gervitunglagögn úr Cosmo-SkyMed (InSAR) af Reykjanesskaga sem sýna breytingar á svæðinu frá 21. april til 8. maí. Miðja þenslunnar og jafnframt þar sem risið mælist mest er vestan við Þorbjörn upp á um það bil 1,5 sm. (Myndvinnsla: Veðurstofan, Michelle Maree Parks)

 

14.05

Talsverð skjálftavirkni hefur mælst á Reykjanesskaganum síðustu vikuna og hefur virknin verið hvað mest við Svartsengi og í nágrenni Grindavíkur. Alls hafa um 1.700 skjálftar mælst í sjálfvirka kerfinu á þessu svæði í vikunni, sá stærsti um 2.9 að stærð.

Í frétt sem var birt í lok síðasta mánaðar kom fram að GPS mælanetið á Reykjanesskaganum sem nemur færslur á yfirborði jarðar sýnir þenslumerki sem bendir til kvikusöfnunnar á talsverður dýpi við Fagradalsfjall. GPS stöðvar í nágrenni við Þorbjörn hafa á síðustu tveimur vikum sýnt breytingar sem benda til lítilsháttar þenslu við Svartsengi. „Þessar færslur sem við sjáum eru ennþá litlar, í kringum 10-15mm þar sem þær eru mestar“, segir Benedikt G. Ólafsson, sérfræðingur á sviði jarðskorpuhreyfinga á Veðurstofu Íslands, en Benedikt í samvinnu við Jarðvísindastofnun Háskólans fylgist náið með jarðskorpuhreyfingum á svæðinu. „Færslan sem við greinum nú svipar til þeim sem við greindum á sömu slóðum fyrri hluta árs 2020“, segir Benedikt.

 

InSAR gervitunglamyndir sem spanna tímabilið 29. apríl – 7 maí og 21. apríl – 8. maí, sýna sambærilegar breytingar og mælst hafa á GPS stöðvunum. „Það sem við höfum lært af eldsumbrotunum á Reykjanesskaga er að aukning í skjálftavirkni og aflögun getur verið fyrirvari eldgoss, en þá er það alls ekki alltaf raunin“, segir Michelle Maree Parks, en Michelle er ein af vísindamönnum í aflögunarteymi Veðurstofunnar, sem fylgist meðal annars með landrisi. „Eins og oft áður þurfum við hreinlega að sjá hver þróunin verður. Við erum að keyra líkön til að meta t.d. á hvaða dýpi kvikan er á þessu tiltekna svæði. Eins eigum von á nýjum InSAR myndum síðar í mánuðinum og þær eru hluti af þeim gögnum sem við munum vinna úr til að átta okkur betur á þróuninni á svæðinu við Svartsengi”, segir Michelle.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?