Talið er að um 10.000 manns hafi verið á Secret Solstice í gærkvöldi en allt fór frekar vel fram. U.þ.b. 15 fíkniefnamál komu upp í tengslum við hátíðina í gær.
Talsverður fjöldi hélt áfram að skemmta sér og endaði í miðbæ Reykjavíkur en það fór einnig vel fram. Mun minna var um um slagsmál og leiðindi en síðustu nótt.
Fjórir ökumenn voru handteknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og aðrir sex voru handteknir fyrir að aka undir áhrifum áfegnis.
Umræða