Ekkert er Neytendasamtökunum óviðkomandi og í nýjasta hefti Neytendablaðsins er fjallað um klósettþrif, eða öllu heldur virkni þeirra efna sem við reiðum okkur á við þrifin.
Samnorræn gæðakönnun leiddi í ljós að margar tegundir af kósetthreinsi gera lítið gagn. Allur gangur er á því hversu vel þessi efni hreinsa kalk og óhreinindi. Þá innihalda sumar tegundir óæskileg efni, eins og klór.
Neytendasamtök í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi könnuðu alls 33 tegundir af klósetthreinsi en af þeim fást 10 hér á markaði. Hæstu einkunn fékk Harpic Power Plus Max 10 og næst hæstu fékk Closan Antikalk. Nokkrar tegundir fengu það lélega einkunn að í raun er verið að sturta peningunum í klósettið.
Fjórar tegundir eru með umhverfismerkið Svaninn og fá þær allar miðlungseinkunn. Í sænsku útgáfu könnunarinnar var Svansmerktur klósetthreinsir frá Änglamark ótvíræður sigurvegari en sú tegund er ekki seld hér á landi
Hér má sjá umfjöllun um könnunina og ásamt töflu með einkunnargjöf.