Fréttatilkynning 23. júní 2021
Uppstillingarnefnd Frjálslynda lýðræðisflokksins hefur skipað tvo nýja oddvita, þá: Magnús Guðbergsson, öryrkja í Suðurkjördæmi og Björgvin Egil Vídalín Arngrímsson, eftirlaunaþega í Norðausturkjördæmi.
Fyrir voru þeir Guðmundur Franklín Jónsson, hagfræðingur oddviti í Reykjavík norður og Glúmur Baldvinsson, stjórnmálafræðingur oddviti í Reykjavík suður. Oddvitar Norðvesturkjördæmis og Suðvesturkjördæmis verða kynntir um helgina. Stefnu flokksins má kynna sér á X-O.is
Umræða