Heimsmarkaðsverð á eldsneyti hefur lækkað umtalsvert undanfarna daga. Verð á dælunni hér heima hefur ekki fylgt þeirri þróun enn sem komið er, en neytendur ættu að búast við lækkun mjög fljótlega.
Verð á heimsmarkaði hefur fallið hressilega undanfarna daga og stendur tunnan nú í 110 dollurum. Ástæða bensínlækkunarinnar er sögð ótti við að vaxtahækkun bandaríska seðlabankans valdi samdrætti í hagkerfinu. Í síðustu viku fór verð á bensínlítranum á Íslandi í fyrsta skipti yfir 350 krónur. Verð á Brent hráolíu náði hámarki þetta sumarið þann 8. júní þegar tunnan fór upp í 123 dollara. Viku síðar fór lítrinn hér heima upp fyrir 350 krónur þar sem hann er dýrastur að sögn Rúv.
Verð á dælunni hér heima hefur ekkert þokast niður, en það ætti einungis að vera tímaspursmál ef lækkanir á heimsmarkaði lúta sömu lögmálum og hækkanir.
Ódýrasta eldsneytið er sem fyrr á bensínstöðvum umhverfis Costco í Garðabæ og á Akureyri, í kringum 320 krónur líterinn. 24% virðisaukaskattur er á eldsneyti, auk þess eru bifreiðagjöld lögð á sérstaklega og önnur ofur gjöld sem ríkið setur á eldsneytið, á meðan að engin slík gjöld eru á rafbílum.