Salmonella greindist í einni lotu af Tahni Sesam Mus og hefur Miðausturlandamarkaðurinn stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Tahini Sesam Mus, 800g krukkur. Salmonella er baktería sem getur valdið alvarlegum sýkingum í mönnum. ![](https://gamli.frettatiminn.is/wp-content/uploads/2022/06/ScreenHunter_203-Jun.-23-18.58.jpg)
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum Rasff hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Al Burj
Vöruheiti: Tahni Sesam Mus
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 12/08/2023
Strikamerki: 220332595
Nettómagn: 800 g
Framleiðandi: Kosebate.GmbH
Framleiðsluland: Sýrland
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig má skila henni gegn endurgreiðslu í verslunina Miðausturlandamarkaðurinn, Lóuhólum 2‐4. Nánari upplýsingar má nálgast í versluninni Miðausturlandamarkaðurinn.
Umræða