• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sigrún Þuríður Geirsdóttir er fyrsta konan til að synda Eyjasund

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. júlí 2019
in Fólk, Fréttir, Innlent
A A
0

 
Sigrún Þuríður Geirsdóttir varð í nótt fyrsta konan til að synda svokallað Eyjasund, þ.e. að synda frá Vestmannaeyjum til Landeyjasands. Sigrún hóf sundið kl. 01:10 í nótt frá Eiðinu á Heimaey en leiðin sem Sigrún synti var rúmir 11 km og tók sundið hana 4 klst og 31 mín. Eyjafréttir fjölluðu um sundið og tóku mynd af Sigrúnu.

Sigrún Þuríður Geirsdóttir varð fyrsta konan til að synda Eyjasund

Sundið gekk mjög vel og voru veðurskilyrði hagstæð. Fyrstu tvo klukkutímana fylgdu höfrungar henni eftir en mávar, fýlar og lundar sýndu einnig sundi hennar mikinn áhuga.
Það er skemmtilegt frá því að segja að Sigrún er frænka eins frægasta sjósundskappa Ísland, Eyjólfs Jónssonar, sem synti Eyjasundið fyrstur manna í júlí árið 1959 eða fyrir sléttum 60 árum síðan. Sigrún er fimmti Íslendingurinn til að synda Eyjasundið. Fylgdarfólk Sigrúnar á sundinu voru Haraldur Geir Hlöðversson frá Vestmannaeyjum, Jóhannes Jónsson og Harpa Hrund Berndsen. Björgunarsveitin Dagrenning frá Hvolsvelli tók á móti Sigrúnu þegar hún landaði.
Sigrún er ekki óvön löngum sundum í sjó en árið 2015 var hún fyrsta íslenska konan til að synda yfir Ermarsundið. Sigrún synti 34 km leið frá Dover á Englandi til Cap Gris-Nez í Frakklandi á 22 klukkustundum og 34 mínútum. Í september næstkomandi mun Sigrún þreyja sundið á ný yfir Ermarsundið í þetta skiptið mun hún synda boðsund í hópi afrekskvenna sem kalla sig Marglytturnar en þær vilja vekja athygli á hnignandi lífríki sjávar vegna mengunar og safna um leið áheitum fyrir umhverfissamtökin Bláa herinn.
„Mér mjög leið vel í byrjun sundsins en sjávarföllin, að sögn skipstjórans, voru einkennileg. Því í austurfallinu rak mig til vesturs en ekki austur. Mér varð óglatt og kastaði aðeins upp en annars leið mér ágætlega. Hausinn á mér var góður allan tímann og reyndi ég að hugsa alltaf jákvætt, ég söng í huganum og var alltaf að hugsa um hversu langt ég var komin miðað við önnur sund sem ég hef synt.
Vegalengdin var rúmir 11km og það tók mig 4:31 að synda þetta sem var mun skemur en ég hafði áætlað,“ segir Sigrún Þ. Geirsdóttir í viðtali við Eyjafréttir.
Þeir sem hafa synt Eyjasundið eru:
Eyjólfur Jónsson árið 1959
Axel Kvaran árið 1961
Kristinn Magnússon árið 2003
Jón Kristinn Þórsson árið 2016
Sigrún Þuríður Geirsdóttir árið 2019

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?