Mikil ólga ríkir innan embættis Lögreglunnar á Suðurnesjum þar sem tveir starfsmenn hafa kvartað undan framgöngu lögreglustjórans og aðrir tveir undan einelti af hálfu tveggja yfirmanna embættisins. Samkvæmt heimildum fréttastofu Rúv, hefur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, lagt það til við Ólaf Helga Kjartansson, lögreglustjóra á Suðurnesjum, að hann hætti störfum sem lögreglustjóri en við því hefur hann ekki orðið.
Þá kemur fram að kvartanir vegna framgöngu Ólafs Helga séu á borði dómsmálaráðherra þar sem tveir starfsmenn embættisins leituðu til trúnaðarmanns sem kynnti erindi þeirra fyrir ráðherra í maí síðastliðnum. Þetta staðfestir trúnaðarmaður starfsmanna hjá embætti Lögreglunnar á Suðurnesjum við fréttastofuna. Ólafur Helgi hefur ekki viljað tjá sig um málið.
Fyrr í vikunni kom fram í fréttum RÚV að tveir starfsmenn hefðu kvartað til fagráðs lögreglu undan einelti tveggja yfirmanna embættisins. Annar þeirra sem kvartað var undan er Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur, hinn er mannauðstjóri embættisins. Þau sendu frá sér yfirlýsingu í morgun og vísa alfarið á bug þeim ávirðingum sem á þau hefðu verið bornar. Þau hafa meðal annars verið sögð grafa undan lögreglustjóranum. Þá kemur fram að fjármál embættisins séu til skoðunar hjá Ríkisendurskoðun. Ólafur Helgi staðfestir við fréttastofu að hafa farið fram á ríkisendurskoðandi gerði þá úttekt.