FRÁ FARSÓTTANEFND OG VIÐBRAGÐSSTJÓRN LANDSPÍTALA 23. JÚLÍ:
INNILIGGJANDI COVID-SJÚKLINGUM FJÖLGAR, MIKILL VIÐBÚNAÐUR
Landspítali er á hættustigi
Staðan kl. 12:00, föstudaginn 23. júlí: Þrír eru inniliggjandi og 369 eru í eftirliti á COVID-göngudeild þar af 28 börn. Sjö starfsmenn eru í einangrun, 14 í sóttkví A og 229 í vinnusóttkví
Sérstakar tilkynningar:
- Matsalir og kaffistofur. Verið er að leita leiða til að hefja á ný matarskömmtun og matarsendingar á deildir líkt og gert hefur verið í fyrri bylgjum Á því eru ákveðin vandkvæði en á meðan verið er að leysa úr því er starfsfólk beðið um að gæta ítrustu varúðar í matsölum og virða eins metra fjarlægðamörk þegar grímur er teknar niður til að matast. Þá taka aftur gildi takmarkanir á kaffistofum starfseininga sem miða við eins metra reglu.
- Þar sem ekki er mögulegt að banna blöndun starfsfólks milli deilda er ástæða til að vekja athygli á reglum um starfsfólk sem fara á milli starfsstöðva og er starfsfólk beðið um að rifja þær upp á innri vef spítalans:
https://traveler.lsh.is/focal/gaedahandbaekur/gnhskurda.nsf/5e27f2e5a88c898e00256500003c98c2/df20a0d19ded1a370025862a00313bc0?OpenDocument - Verið er að vinna í hótelúrræði fyrir starfsfólk sem þarf að fara af heimili sínu vegna smits eða sóttkví á heimili (verndandi úrræði) eða vegna vinnusóttkvíar. Beiðnir um slíkt úrræði þurfa að berast til monnunarteymi@landspitali.is og verður reynt að leysa úr erindum eftir bestu getu næstu dagana.
- Smitsjúkdómadeildin er ekki fullopin þar sem nú eru þar þrír COVID-sjúklingar og viðbúið er að þeim fjölgi á næstu sólarhringum.
- Viðbragðsstjórn og farsóttanefnd funda alla daga kl. 11:30 í kjölfar stöðumats spítalans. Eftir fundinn eru gefnar út tilkynningar um stöðuna og nýjar reglur/tilmæli sem birtar eru á öllum miðlum Landspítala og gjarnan einnig sendar fjölmiðlum.
Discussion about this post