• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 5. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Að gyrða sig í brók, sjálfstæðismenn

ritstjorn by ritstjorn
23. ágúst 2019
in Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

 

Að gyrða sig í brók, sjálfstæðismenn
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins

Minn­ist ég þess er ég kynnti í rík­is­stjórn drög að þings­álykt­un um að slíta viðræðum við Evr­ópu­sam­bandið. Skelf­ing greip um sig hjá sjálf­stæðismönn­um þar sem þeir töldu sig ekki geta klárað málið þrátt fyr­ir að þing­for­seti væri þeirra og stjórn­in með góðan þing­meiri­hluta. Önnur leið var far­in, en nokkr­ir gaml­ir sjálf­stæðis­menn geta ekki fyr­ir­gefið sín­um mönn­um það.
Hinn úti­tekni þing­flokk­ur sjálf­stæðismanna kann­ast ekki við eig­in ábyrgð nú sem fyrr og hef­ur ekki getað sagt kjós­end­um hvað er svona gott við orkupakk­ann, þrátt fyr­ir hring­ferð á ís­bíln­um. Frá kosn­ing­um 2013 hef­ur Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn stýrt ut­an­rík­is­mála­nefnd. Flokk­ur­inn var einnig með for­mennsku í at­vinnu­vega­nefnd 2013 til janú­ar 2017 og stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd.
Flokk­ur­inn hef­ur stýrt iðnaðarráðuneyt­inu frá 2013. Nú­ver­andi ut­an­rík­is­ráðherra flokks­ins sat í ut­an­rík­is­mála­nefnd 2013-2014 og var formaður Íslands­deild­ar þing­manna­nefnda EFTA og EES í mörg ár áður en hann varð ráðherra.
Hinn 18. mars 2015 send­ir formaður ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar Birg­ir Ármann­son ut­an­rík­is­ráðherra (mér) bréf þar sem seg­ir: „Ut­an­rík­is­mála­nefnd hef­ur, í sam­ræmi við 2. gr. regl­an um þing­lega meðferða EES-mála, fjallað um svo­kallaðan þriðja orkupakka (til­skip­un 2009/​72/​EB o.fol.) til mats á því hvort efn­is­legra aðlag­ana sé þörf. Málið er til um­fjöll­un­ar í vinnu­hópi EFTA og var ut­an­rík­is­mála­nefnd upp­lýst um málið með skeyti frá ut­an­rík­is­ráðuneyti dags. 5. mars 2014 ásamt fylgigöng­um.
Til­skip­un­in hef­ur fengið efn­is­lega um­fjöll­un í at­vinnu­vega­nefnd og stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd. Ut­an­rík­is­mála­nefnd ákvað í kjöl­far álits nefnd­anna að taka málið til frek­ari skoðunar, þá sér­stak­lega út­færslu aðlag­ana og stjórn­skipu­leg álita­efni sem uppi eru í þeim efn­um og hef­ur fengið sér­fræðinga ráðuneyta á fundi vegna máls­ins.
Ut­an­rík­is­mála­nefnd ósk­ar eft­ir því að unn­in verði grein­ar­gerð um það hvort þau drög að aðlög­un­ar­texta sem nú liggja fyr­ir og þær út­færslu sem þar er kveðið á um á grund­velli tveggja stoða kerf­is EES-samn­ings­ins sam­rým­ist stjórn­ar­skrá.“
Hinn 26. júní 2016 svar­ar ut­an­rík­is­ráðuneytið er­indi Birg­is en þá er ut­an­rík­is­ráðherra orðin Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir. 20 sept­em­ber 2016 send­ir þáver­andi formaður ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar, Hanna Birna Kristjáns­dótt­ir, Lilju Dögg Al­freðsdótt­ur ut­an­rík­is­ráðherra bréf þar sem hún seg­ir að ut­an­rík­is­mála­nefnd hafi lokið um­fjöll­un um málið. Guðlaug­ur Þór keyr­ir síðan málið áfram.
Sjálf­stæðis­menn hafa þannig stýrt orkupakka 3 í gegn­um þingið frá 2013 og til dags­ins í dag.
ESB mun krefjast enn meiri stjórn­ar á orku­markaði Evr­ópu og þar með Íslandi með orkupakka 4.
Von­andi gyrða sjálf­stæðis­menn sig í brók og koma með okk­ur í Miðflokkn­um að berj­ast gegn þess­um yf­ir­gangi ESB.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins.

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?