Fréttatilkynning eftir fund með rekstraraðilum í Svörtu Fjöru, hluta landeigenda í Reynisfjöru, sveitarstjóra Mýrdalshrepps, fulltrúum; Lögreglunnar á Suðurlandi, Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar.
• Samkvæmt gögnum frá Veðurstofu Íslands er ennþá hætta á berghruni úr suðurhlið Reynisfjalls. Ákveðið hefur verið að halda austasta hluta Reynisfjöru lokuðum enn um sinn.
• Svæðið verður vaktað og lokunarborði til staðar.
• Unnið verður að útfærslu á frekari lausn að lokun á þessum hluta fjörunnar.
• Farið verður í vinnu við uppfærslu og samræmingu aðvörunarskilta sem standa við göngustíginn sem liggur niður í fjöruna. Mikilvægt er að koma fræðslu og upplýsingum á framfæri við gesti svæðisins
Umræða