Fram kemur á Facebook síðu Lögreglunnar á Suðurlandi að Lögreglan er nú við vinnu á vettvangi umferðarslyss á Suðurlandsvegi við Lómagnúp. Í fyrstu var talið að aðili sem var einn á ferð í bíl sem valt út af vegi væri mikið slasaður en við athugun reyndust meiðsl hans mun minni en tilkynningin hljóðaði upp á. Umferð um svæðið er nú stýrt af lögreglu um aðra akrein vegarins og verða því einhverjar tafir þar. Frétt þessi verður uppfærð þegar full opnun er komin á.
Umræða