Eldur í hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni
Eldur kom upp rétt fyrir klukkan 10:00 í morgun í hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni.
Eldurinn kviknaði í hjólhýsi og pallavirki sem byggt hafði verið í kringum hann.
Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu voru á staðnum í morgun og töldu sig vera búnir að ná tökum á eldinum en talsverð hætta var á útbreiðslu elds í skóglendið sem þarna er í kring.
Talsvert lið slökkviliðsmanna og búnaðar var á staðnum
Slökkviliðsmenn náðu að koma í veg fyrir útbreiðslu eldsins en lengi logaði í braki á svæðinu.
Eldurinn kviknaði í hjólhýsi þegar betur var að gáð en ekki húsbíl eins og fyrst var talið. Nokkur önnur hjólhýsi voru í hættu en það tókst að afmarka eldinn við þetta eina hjólhýsi.
Pallavirki sem áfast var við hjólhýsið brann og loguðu lengi glæður í því.
Slökkvistarfinu lauk um 11.30 og lögreglu afhentur vettvangurinn til rannsóknar. Brunavarnir Árnessýslu greindu frá málinu.