Mikill fjöldi fólks kom saman á Austurvelli í dag þar sem boðað var til mótmæla klukkan 14. Kristinn Hrafnsson ristjóri Wikileaks kom fram og sagði að nýbúið væri að handtaka sjávarútvegsráðherra Namibíu. Mótmælin stóðu yfir í rúma klukkustund og þrjár kröfur voru lagðar fram: Að Kristján Þór Júlíusson segði af sér sem ráðherra, nýja stjórnarskráin yrði lögfest og að arður af nýtingu auðlinda renni í sjóði sem nýtast munu almenningi í landinu.
Sólveig Anna Jónsdóttir kom fram og sagði að Morgunblaðið og Eyþór Arnalds væri fjármagnað með illa fengnu fé frá Namibíu, og huldar mútur og hið illa fengna fé væri grasserandi á Íslandi þar sem búið væri að koma því m.a. fyrir til fyrirtækja hér á landi. Fréttatíminn hefur m.a. heimildir fyrir því að Samherji hafi notað Namibíupeninga til að fjármagna ákveðið hvalaskoðunarfyrirtæki en mál Samherja eru nú til rannsóknar hjá ýmsum yfirvöldum hérlendis og erlendis.
Kröfur mótmælenda voru:
Rán á auðlindum
Almenningur í Namibíu er rændur af íslenskri stórútgerð. Almenningur á Íslandi er rændur arðinum af auðlindum sínum. Tugir milljarða eru færðir árlega í vasa stórútgerða sem ættu að renna í sjóði almennings til uppbyggingar samfélagsins.
Óréttlæti og spillingu
Óréttlætið þrífst í skjóli úreltrar stjórnarskrár og pólitískrar spillingar. Stjórnmálaflokkar standa auðsveipir gagnvart sérhagsmunum örfárra sem náð hafa heljartaki á þjóðlífinu í skjóli lögverndaðs arðráns og ofsagróða. – Fjárhagsleg samskipti stórútgerða og stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka þarf að rannsaka og skera upp herör gegn skattaskjólum og peningaþvætti.
Aðför að lýðræði
Alþingi bað landsmenn um tillögur að nýrri stjórnarskrá. Alþingi fékk umbeðnar tillögur og boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslu um þær. Yfir 2/3 hlutar kjósenda (67%) samþykktu að tillögurnar skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár. Síðan eru liðin sjö ár! Grafið er undan lýðræði í landinu með þjónkun við sérhagsmuni og ógnandi vanvirðingu gagnvart lýðræðislegum vilja kjósenda og endurteknum tilræðum við nýju stjórnarskrána.
Við krefjumst!
• Alþingi lögfesti nýja og endurskoðaða stjórnarskrá sem landsmenn sömdu sér og samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012. – Að sjálfsögðu með því auðlindaákvæði sem kjósendur samþykktu.
• Arður af nýtingu sameiginlegra auðlinda landsmanna renni í sjóði almennings til uppbyggingar samfélagsins og mannsæmandi lífskjara allra.
• Sjávarútvegsráðherra segi tafarlaust af sér embætti.
Spillingardans til heiðurs Samherja
Eftir ræðuhöldin steig hljómsveitin Hatari á svið og tók nokkur vel valin lög. Á lagalistanum var meðal annars lagið Spillingardans, sem þeir segjast hafa spilað til heiðurs Samherja. Jafnframt tóku Hatarar undir kröfurnar sem lagðar voru fram og ítrekuðu beiðni um nýja stjórnarskrá.
https://www.facebook.com/Stjornarskrarfelagid/videos/502647330341146/
https://gamli.frettatiminn.is/2019/11/22/skipulagdur-glaepur-landrad/