Örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar sem áttu rétt á desemberuppbót á árinu 2019 fá í dag greiddar tíu þúsund krónur í sérstaka eingreiðslu.
Í tilkynningu á vef Tryggingastofnunar kemur fram að greiðslan sé undanþegin skatti og taki ekki mið af öðrum tekjum eða hlutfalli lífeyris.
Greiðslan sé í samræmi við lög sem samþykkt voru á Alþingi 11. desember og greidd út eftir að lögin voru birt í Stjórnartíðindum.
Greiðslan sé í samræmi við lög sem samþykkt voru á Alþingi 11. desember og greidd út eftir að lögin voru birt í Stjórnartíðindum.
Umræða