Áhöfnin á varðskipinu Freyju kölluð út að beiðni lögreglunnar á Vestfjörðum
Áhöfnin á varðskipinu Freyju hefur verið kölluð út að beiðni lögreglunnar á Vestfjörðum vegna slæmrar veðurspár og hugsanlegrar snjóflóðahættu um helgina. Gert er var fyrir að skipið héldi úr höfn á Siglufirði um miðnætti og verði komið vestur á firði snemma í dag.
Almannavarnir hafa vakið athygli á að veðurspá helgarinnar er ekki góð og hætta á að færð spillist og snjóflóðahætta myndist á Vestfjörðum. Átján manna áhöfn skipsins, sem var á bakvakt, brást skjótt við kallinu og hóf þegar undirbúning fyrir brottför.
Miðað við veðurspá eru allar líkur á að skipið verði til taks á Vestfjörðum fram yfir helgi.
Umræða