• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hættustig almannavarna á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu vegna jarðskjálftahrinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. febrúar 2021
in Innlent
A A
0

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, lögreglustjórann á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands, lýsir yfir hættustigi almannavarna vegna öflugrar jarðskjálftahrinu sem nú gengur yfir á Reykjanesi. 

Hættustig almannavarna á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu vegna jarðskjálftahrinu

Hættustig almannavarna  er sett á til að samhæfa aðgerðir og verklag ýmissa verklagsaðila og stofnana og hefur ekki áhrif á almenning. Hættustig er sett á ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum þó ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sé að ræða.

Skjálfti af stærð 5.7 mældist um 3.3 km SSV af Keili á Reykjanesi kl. 10:05.  Upptök skjálftanna eru á um 20 km. kafla frá Grindavíkurvegi að Kleifarvatni. Fjöldi eftirskjálfta hefur fylgt og hefur sjálfvirka jarðskjálftakerfi Veðurstofu Íslands numið alls 12 skjálfta yfir 4 að stærð frá því hrinan hófst.

Síðasti skjálfti mældist 4.8 að stærð kl. 12:37.  Skjálftarnir hafa fundist víða á Suðvesturhorninu og allt norður í Húnaþing og vestur á Ísafjörð. Varað er við grjóthruni á Reykjanesskaga á meðan á hrinunni stendur. Unnið er að nánari yfirferð á skjálftavirkni. Athugið að skjálftavirknin er bundin við Reykjanesskaga. Aðrar staðsetningar á skjálftum eru óáreiðanlegar. Engin merki eru um gosóróa á svæðinu.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fylgist vel með í samvinnu við lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands.

Lögreglan á Suðurnesjum fer núna um svæðið til að kanna áhrif skjálftans. Þá hefur áhöfn á þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið yfir Reykjanes til að kanna aðstæður.

 

Grjót hefur hrunið úr fjöllum á Reykjanesi og hvítir gufustrókar á jarðhitasvæðum hafa sést á svæðinu.

Veðurstofa Íslands hefur hækkað litakóða fyrir flug á Reykjanesi yfir á gult og er það samkvæmt verklagsreglum.

Almannavarnadeild hvetur fólk á þekktum jarðskjálftasvæðum til kynna sér varnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta á heimasíðu almannavarna:  https://www.almannavarnir.is/natturuva/jardskjalftar/varnir-gegn-jardskjalfta/
Þar er einnig að finna leiðbeiningar um viðbrögð eftir jarðskjálfta: https://www.almannavarnir.is/natturuva/jardskjalftar/eftir-jardskjalfta/

Myndir sem áhöfn á þyrlu Landhelgisgæslunnar tóku í morgun.

Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Togarar á strandveiðum

    Togarar á strandveiðum

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    127 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Íslandsbanki: Eru forsendur sölunnar þegar brostnar?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    69 deilingar
    Share 28 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?