• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland fordæmir innrás Rússa í Úkraínu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. febrúar 2022
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Íslensk stjórnvöld fordæma harðlega víðtækar árásir rússneskra stjórnvalda á Úkraínu og lýsa harmi yfir þeirri eyðileggingu og þjáningu sem slík innrás óhjákvæmilega veldur.

„Hugur okkar er hjá því saklausa fólki sem verður fyrir barðinu á stríðsrekstri og ógnartilburðum Rússlands í Úkraínu. Ísland fordæmir harðlega ólögmæta innrás Rússlands í Úkraínu sem á sér enga réttlætingu. Við krefjumst þess að Rússar stöðvi hernaðaraðgerðir sínar sem geta valdið miklum hörmungum. Árásin er alvarlegt brot á alþjóðalögum og kallar á hörð viðbrögð frá alþjóðasamfélaginu,” segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

„Stríðsrekstur Rússa í Úkraínu er raunveruleg ógn við öryggi í Evrópu. Við stöndum staðfastlega með okkar bandalagsríkjum og nánustu samstarfsríkjum og tökum fullan þátt í víðtækum þvingunaraðgerðum sem verða útfærðar í dag og á morgun. Ísland hefur lýst algjörum stuðningi við Úkraínu og fordæmir innrás gegn löghelgi landamæra þeirra. Við tökum heilshugar undir kröfu um að Pútín Rússlandsforseti dragi herlið sitt tafarlaust frá Úkraínu,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Atlantshafsbandalagið hefur gert viðeigandi ráðstafanir, viðbragðsstaða hefur verið aukin og varnarviðbúnaður styrktur. Þá fór fram fundur í fastaráði bandalagsins í morgun á grundvelli 4. greinar Atlantshafssáttmalans sem kveður á um samráð telji eitt eða fleiri bandalagsriki öryggi sínu ógnað. Með styrkingu á varnarviðbragði er átt við að viðbragðsstaða herafla bandalagsins er aukin. Þessi ákvörðun getur haft í för með sér aukin umsvif og sýnileika herafla bandalagsins í aðildarríkjunum.

Ísland mun leggja sitt af mörkunum til að styðja við Úkraínu. Í því felst meðal annars áframhaldandi stuðningur við þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi. Þá hefur verið tekin ákvörðun um að veita sem svarar einni milljón evra til mannúðaraðstoðar í Úkraínu. Þá hefur Ísland sett 200.000 evrur í áætlun Atlantshafsbandalagsins og Úkraínu um þróun sérfræðiþekkingar á sviði öryggis- og varnarmála (NATO Ukraine Professional Development Programme).

Sendiherra Rússa á Íslandi var boðaður til fundar í utanríkisráðuneytinu í gær og aftur í dag þar sem ráðuneytið gerði grein fyrir afstöðu Íslands og kom á framfæri hörðum mótmælum.

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins veit nú af 16 íslenskum ríkisborgurum í Úkraínu og samtals 28 sem borgaraþjónustan er í sambandi við. Viðbúið er að tölur um fjölda Íslendinga á svæðinu geti breyst. Áfram verður haft náið samráð við borgaraþjónustur Norðurlandanna.

Umræða
Share8Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?