• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 13. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi NATO

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. mars 2022
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat í dag leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel, ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. Tilefni fundarins var að ræða innrás Rússlands í Úkraínu og viðbrögð NATO í bráð og lengd. Eining var rætt um áframhaldandi stuðning við Úkraínu en Volodomír Zelenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði fundinn í gegnum fjarfundabúnað.
Í yfirlýsingu leiðtogafundarins er ólögmætur hernaður Rússlands gegn Úkraínu harðlega fordæmdur, rússnesk stjórnvöld hvött til að hætta öllum árásum og skorað á þau að hefja tafarlaust friðarviðræður. Sérstaklega er skorað á rússnesk stjórnvöld að hleypa óbreyttum borgurum frá borginni Mariopol. Samþykkt var að styrkja varnarviðbúnað á austurvæng NATO með herliði í Ungverjalandi, Slóvakíu, Búlgaríu og Rúmeníu. Frekari ákvarðanir um styrkingu fælingar- og varnargetu bandalagsins eru í undirbúningi og verða lagðar fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem fram fer í Madrid í lok júní. Ríki heims, þ.m.t. Kína, eru hvött til að standa vörð um alþjóðalög, fullveldi ríkja og friðhelgi landamæra, í samræmi við stofnsáttmála SÞ.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Hörmungar vegna mannfalls og eyðileggingar í Úkraínu eru mér efst í huga, stríð bitna fyrst og fremst á saklausum borgurum. Konur og börn eru sérstaklega útsett fyrir stríðsglæpum, þar með talið kynbundnu ofbeldi, og við því þarf alþjóðasamfélagið að bregðast. Stilla þarf tafarlaust til friðar og mikilvægt er að halda til streitu kæru gegn Rússlandi fyrir Alþjóðaglæpamannadómstólnum.“

Í tengslum við fundinn tilkynnti Katrín um 150 m.kr. viðbótarframlag til mannúðarstarfs en íslensk stjórnvöld hafa nú samtals veitt rúmlega hálfum milljarði króna til alþjóðlegs hjálparstarfs í Úkraínu. Fyrir liggur að bregðast þarf við fjölþáttaógnum, ekki síst á sviði netöryggismála, en íslensks stjórnvöld munu auka fjárveitingar til þeirra í langtímaáætlunum. Til lengri tíma litið sé nauðsynlegt að stemma stigu við útbreiðslu kjarnorkuvopna. Þá séu áhrif stríðsins í Úkraínu á fæðuframboð og félagslegan ójöfnuð verulegt áhyggjuefni.

Í heimsókn sinni til Brussel átti forsætisráðherra samtöl við Jonas Gahr Störe, forsætisráðherra Noregs, og Nicolae Ciucă, forsætisráðherra Rúmeníu. Þá áttu forsætis- og utanríkisráðherra fund með Irinu Feller, nýjum fulltrúa NATO fyrir konur, frið og öryggi, en þátttaka kvenna í öryggismálum og friðarferlum er eitt áherslumála Íslands á vettvangi Atlantshafsbandalagsins. Eftir fundinn heimsótti forsætisráðherra höfuðstöðvar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?